Re: svar: Jólaklifur á laugardag

Home Umræður Umræður Almennt Jólaklifur á laugardag Re: svar: Jólaklifur á laugardag

#47636
AB
Participant

Ætli það verði ekki skundað í Klifurhúsið, einu von klifrara á þessum hörmulega vetri. Þó ekki sé þar ís að finna (nema þá helst í sjoppunni) er alltaf ágætt að sprikla eilítið í veggjunum og fá blóðið í gang. Ef fólk er að tapa sér í ísklifurpælingum, þá er par af plastöxum í afgreiðslunni sem má brúka til klifurs á veggjunum, en þá er alveg bannað að sveifla öxunum, bara húkka!
Ekki þarf þó að sökkva sér í sorgir yfir rigningunni, því á laugardagskvöldið verður hið árvissa jólaglögg klúbbsins. Ég ætla ekki að missa af því. Í fyrra var stemmningin góð og nú verður hún enn betri í nýju húsnæði. ATH auglýsingu um glöggið á vefnum.
Sjáumst, AB.