Jólaklifur á laugardag

Home Umræður Umræður Almennt Jólaklifur á laugardag

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45892
    1506774169
    Meðlimur

    Mér varð það á að reka augun i veðurspá mbl.is sem er komin fyrir laugardag og líst mér satt að segja ekkert á hana, mígandi rigning og þungbúið. Eru líkur á að eitthvað annað verði gert ef jólaklifur forfallast?

    #47636
    AB
    Participant

    Ætli það verði ekki skundað í Klifurhúsið, einu von klifrara á þessum hörmulega vetri. Þó ekki sé þar ís að finna (nema þá helst í sjoppunni) er alltaf ágætt að sprikla eilítið í veggjunum og fá blóðið í gang. Ef fólk er að tapa sér í ísklifurpælingum, þá er par af plastöxum í afgreiðslunni sem má brúka til klifurs á veggjunum, en þá er alveg bannað að sveifla öxunum, bara húkka!
    Ekki þarf þó að sökkva sér í sorgir yfir rigningunni, því á laugardagskvöldið verður hið árvissa jólaglögg klúbbsins. Ég ætla ekki að missa af því. Í fyrra var stemmningin góð og nú verður hún enn betri í nýju húsnæði. ATH auglýsingu um glöggið á vefnum.
    Sjáumst, AB.

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.