Re: svar: Hvernig er staðan í Hlíðarfjalli

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Hvernig er staðan í Hlíðarfjalli Re: svar: Hvernig er staðan í Hlíðarfjalli

#48291
0902703629
Meðlimur

Jú, jú það er alltaf sama blíðan hérna fyrir norðan!

Það er ekki hægt að kvarta undan snjóleysi þar sem það er langt síðan maður hefur séð jafn mikinn snjó á svæðinu!

Í gærkvöldi var opið til 21:00 en þá náðist einungis að vinna brekkurnar við Fjarkann, Hjallabraut og Hólabraut og því var Strýtan lokuð. Í augnablikinu eru hinsvegar tveir snjótroðarar við Strýtuna þannig að ég geri fastlega ráð fyrir að Strýtan verði opnuð í dag. Skálin fyrir neðan klettana (á syðri hluta svæðisins) er ekki lengur skál heldur hóll og klettarnir ekki lengur sjáanlegir.

Einhver hluti svæðisins verður alltaf opinn þó að snjóflóðahætta sé fyrir hendi og veðurspáin er ágæt fyrir svæðið einsog er. Það er frábært færi og nægur snjór….gaman, gaman.

Sjáumst á skíðum,
Kristín