Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Velja fjallaskíði – bestu skíðin fyrir Ísland? › Re: Re: Velja fjallaskíði – bestu skíðin fyrir Ísland?
Vetrarbúnaðarpælingar fá mesta athyglina á spjallborðinu þessar stundirnar. Það segir sitt, takk fyrir ábendingarnar.
Já, verðin á klakanum eru ekki beint innan míns ramma svo maður sletti nú.
Ég þykist vera raunsær, ekki er púður á fjöllum alla daga og því kýs ég skíði sem hægt er að keyra í harðfenni líka, takk fyrir ábendinguna um þann þátt Ágúst. En þó ég eigi Double X banditta (veit, örmjó kvikyndi) þá er ég samt ekki á hreinu með að skíða í ís á skíðum með mitti (90 60 90), er það ekkert erfiðara?
Guðjón þú mátt alveg upplýsa hvar, hvenær og hvernig þú verslaðir þér þína gripi erlendis
Annað, hvað er hámarksbreidd sem gáfulegt er að hugleiða, breitt er þungt og erfitt að keyra nema suddapúður sé eða hvað?
Fyrir ykkur sem eru tvítóla, bæði fjalla- og telemarkskíðandi, er ekki hægt að skipta einfaldlega út plötum með bindingunum á, flestir eru með upphækkanir eða hvað?
Ingimundur