Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Meira mix – meira stuð. › Re: Kaldakinn – aðstæður
3. febrúar, 2009 at 21:15
#53708
Siggi Tommi
Participant
Gott mál. Það er allt að verða löðrandi í leiðum þarna uppfrá.
En… það er víðar hægt að príla en í Esjuhlíðum…
Datt í hug að minnast á að ábúendur að Björgum í Kaldakinn halda úti vefsíðunni http://www.bjorgum.is þar sem finna má myndir og sitthvað fleira um ísklifur á svæðinu auk gistimöguleika og fleira.
Þar vakti helst athygli mína sérdeilis prýðilegur fítus sem sýnir vikulega myndir af ísaðstæðum í Ógöngufjalli. Sé ekki betur en flestar leiðir séu að detta í aðstæður og því tilvalið að drífa sig norður við tækifæri.
Slóðin á aðstæðusíðuna er:
http://www.bjorgum.is/icebjorg—iceclimbing-area/the-ice/