Villingadalur

Villingadalur er Austasti hlutinn undir norðurhlíðum Skarðsheiðar, djúp dalhvilft sem gegnur SV inn í meginfjallið og rennur Villingadalsá eftir honum.

Hægt er að leggja bílnum á slóða sem liggur austur af Dragarvegi (520). Þaðan er gengið inn dalinn og þarf að fara yfir Hestadalsá í byrjun (sjá kort). Gangan tekur tæplega 1.5 klst og getur sóst hægt í miklum snjó. Einnig er hækkun talsverð, eða um 330 metrar. Dalurinn safnar talsverðum snjó, sérstaklega þegar líður á veturinn.  Klifrið hefst í um 450 metra hæð og ef klifrað er alla leið upp á brún þá er farið upp í 800 metra, en flestir síga niður mun fyrr þar sem ísinn ofan fyrstu skálar er oft minna spennandi og snjórinn vill drekkja honum.

Í botni dalsins má finna fimm ísklifurleiðir auk þess sem hægt er að finna auðvelt stöllótt klifur í gili sunnan við fossana. Ísþilið sunnan megin í dalnum er nokkuð samfellt og hefur mikið verið klifrað í því, samt hafa engar línur fengið nöfn en klifrið er nokkurn veginn WI 2 á flestum stöðum.

  1. Styx – WI 4
  2. Hades – WI 4
  3. Kharon – WI 4+
  4. Kerberos – WI 3

Villingadalur er merktur inní Ísalp leiðavísi frá 1987, sem sector í Skarðsheiði og hér fyrir neðan má sjá þá mynd úr leiðavísinum.

13. Um Hábrúnir Skarðsheiðar – gönguleið (13km)
14. Villingadalsfossar
15. Mórauðihnúkur – Snjór (600M II.)

Kort

Myndbönd

Comments

  1. Róbert Halldórs, Ottó og Guðjón fóru upp í Villingadal laugardaginn 21.nóvember. Þar voru allar leiðir í topp aðstæðum, grunsamlega mikill ís sem tók vel á móti tryggingum. Þeir klifruðu tvær megin leiðirnar til vinstri og fyrir miðju gili. „Eðal stöff, WI4-ish“

    „Báðar leiðirnar er hægt að klifra lengst uppeftir í e-u brölti. Hægra megin er WI3 sem fer lengst uppeftir og er með fullt af litlum höftum sem gæti hentað vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í fjölspanna klifri.“ – Róbert Halldórsson.

Skildu eftir svar