Kerlingafoss WI 3

Kerlingafoss er í Hestadalsá, sem er fyrsti farartálminn þegar klifrar halda inn Villingadal. Öfugt við Villingadalinn þá er aðkoman hér stutt og þægileg. Tekur ekki meira en fimm mínútur. Bílnum er lagt á slóða sem beygir af vegi 520 (sjá yfirlitskort). Fyrir einstaklega kósý klifur þá má nálgast fossinn að ofan og setja þar upp akkeri og síga svo niður og eyða deginum í þægilegu ofanvaði.

Um leiðina

Fossinn býður upp á létt en skemmtilegt klifur. Erfiðustu línurnar gætu slagað í WI3+ en flestar leiðir eru WI3. Þegar klifrað er frá botni og alla leið upp þá eru þetta 22 metrar.  Ef hugmyndin er að æfa sig og hafa gaman þá er betra að setja toppakkerið aðeins neðar og nást þá um 18 metrar af klifri.

Mælt er með því að klifra upp fossinn þegar hætta skal leik því þannig sleppur maður við að ganga upp hlíðina. Þetta var gert í frumferð (sjá vídeó) og mæltist vel fyrir.  Þá var gangan aftur í bílinn rúmar tvær mínútur.

Sagan á bak við leiðina

Kerlingafoss hefur flestum verið hulinn.  Þegar haldið er inn í Villingadal þá er farið yfir Hestadalsá fyrir ofan foss, og sést því ekki í hann.  Sömuleiðis sést hann ekki frá vegi þegar keyrt er. Það var fyrir slysni sem Halldór Fannar rakst á hann í lok síðasta vetrar þegar hann var að skoða aðstæður í Villingadal og kanna jeppaslóða. Þá var fossinn alls ekki frosinn en mynd var tekin, til að setja hann á listann yfir hugsanlegan verkefni.

Það var svo í upphafi árs, sem ákveðið var að kíkja á þennan foss, þar sem frostið hafði verið gott og í versta falli væri hægt að ganga inn Villingadal ef Kerlingafossinn væri ekki í aðstæðum. Úr varð frábær dagur þar sem öllum tímanum var varið í klifur og bara nokkrum mínútum í göngu. Þarna er gott skjól og yndisleg „crag“ stemning. Það eina sem ber að varast er að fossinn fellur í ágætlega djúpa laug og því best að halda sig þar sem ísinn er þykkastur.

FF (Frumferð): óþekkt, en fossinn hefur verið klifinn áður en aldrei skráður.

Klifursvæði Villingadalur
Svæði Hestadalur
Tegund Ice Climbing
Merkingar

Myndbönd

1 related routes

Comments

Skildu eftir svar