Skíðatúr 5.júlí

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Skíðatúr 5.júlí

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47474
    1509815499
    Meðlimur

    Sælir

    Skelltum okkur í síðbúinn skíðatúr út í Ólafsfjarðarmúla þar sem við löbbuðum upp í Torfdal og upp á Kistufjall (1076 m). Vorum uppi kl 01:15 og tókum því rólega í miðnætursólinni. Eðal túr með 650 m droppi en smá drulla undir það síðasta.
    Veit líka af hópi sem fór í Fjörður um helgina, hef ekki fréttir af skíðafæri þar, en svipuð fallhæð.

    #56832
    2109803509
    Meðlimur

    Vá!!! Ótrúlega flott myndskeið. Þvílík blíða og stemning :) Nú langar mann bara skreppa norður í miðnæturskíðun.

    #56834
    Freyr Ingi
    Participant

    Skemmtilegt myndband hjá þér!

    #56835
    Sissi
    Moderator

    Snillingar!

    Flott ferð, flott myndband og töff að skíða í júlí.

    Sissi

    (já og mig langar í þennan post rennslis bjór ykkar, sjitt hvað hann er girnilegur þarna á myndinni)

    #56836
    Smári
    Participant

    Vá hvað þetta kveikir í manni, er að fara norður eftir helgi og alvarlega farinn að íhuga að taka skíðin með…:)

    Smári

    #56838
    Gummi St
    Participant

    Þetta er almennilegt, flott video og snilld að geta enn skíðað!

    #56839
    Arnar Jónsson
    Participant

    Skemmtilegt video, skemmtileg föll ;)

    #56841
    0909862369
    Meðlimur

    Stórskemtilegt video. Gott að sjá að einhverjir sjái um að taka öskutékk þarna fyrir norðan :)

    #56842
    Smári
    Participant

    Ég er að verða nokkuð staðráðinn í að skíða Herðubreið á mánud eða þriðjud. ef einhver hefur áhuga á að koma með er það velkomið.

    Smári 8625614

9 umræða - 1 til 9 (af 9)
  • You must be logged in to reply to this topic.