Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifur um helgina í stað festivals
- This topic is empty.
- 
		HöfundurSvör
- 
		
			
				
18. febrúar, 2010 at 15:01 #47545 Freyr IngiParticipant Freyr IngiParticipantVek athygli á nýjustu fréttinni hér að ofan. 
 Annars er stefnan tekin í norðurland um helgina, myndirnar sem teknar voru í gær sýna þónokkrn ís í Kinninni. Svo er bara spurning í hvaða fasa hann reynist þegar norður er komið.Eins og allamargir vita er prýðis gistingu að hafa á Björgum og tekur húsið, tjah man það nú ekki alveg en alla vega slatta í gistingu svo að þið ykkar sem höfðuð hvort eð er planað helgarferð með ísklifurívafi ættuð að skoða þennann kost. Í það minnsta eru ég, Gummi T, Arnar & Berglind að plana norðurferð. Norðanmenn, eruð þið ekki í fíling? kv, Freyr Ingi 
 868-875418. febrúar, 2010 at 23:04 #55201 0801852789Meðlimur 0801852789MeðlimurNorðanmenn eru í gríðarfíling. 
 Má segja að nett Aspen stemming leynist hér enda var bara celeb stemming í Akureyrarlaug áðan.
 Mjög gott skíðafæri í Hlíðarfjalli enda bætir í hvítagullið með hverjum deginum.
 Erum að fara fullt af liði í massífa fjallabjörgunaræfingu á Sunnudag sem verður tekin á „north face“ Kerlingar þannig að súluliðið verður eflaust lítið í ísnum um helgina en eflaust hugur í einhverjum.Endilega komið með fréttir af aðstæðum. 20. febrúar, 2010 at 19:58 #55204 2808714359Meðlimur 2808714359Meðlimurahhhh sá þennann póst of seint. 
 Ég reyndi við Hlíðarfjall í dag en því miður var það hertekið eina ferðina enn af sunnlendingum. Mér finst ekki gaman í fjallinu þegar maður þarf að leggja niður í bæ og röðin í stólalyftuna nær til Dalvíkur.
 Ég og Finni tókum því létt ísklifur í Munkanum. Þar eru nokkrar stuttar leiðir og klifruðum við leiðina rétt fyrir ofan brúnna. Sem betur fer höfðum við vit á að prófa hana í ofanvað því hrundum niður úr mjög svo tæpu kertinu nokkrum sinnum. Ég mæli með að þessi leið verði skírð Cliffhanger ef ekki er komið nafn á hana.
 Í einu dettinu missti Finni fæturna og vinstri hendina og hékk út af kertinu í lausu lofti bara á hægri hendi. Honum tókst þó að hífa sig upp og ná taki á hinni öxinni sem var enn föst í ísnum. Þetta minnti mjög á eitt atriði í hinni stórkostlegu mynd Cliffhanger.Annars er með mig eins og Magga, verð trúlega á norðurfési Kerlingar á sunnudag. kv 
 Jón H20. febrúar, 2010 at 21:41 #55206 AtliMeðlimur AtliMeðlimurÉg og Stebbi nokkur fórum í suðurhlíð kistufells áðan, fórum upp eitt af gilunum þarna, sem ég hef ekki hugmynd hvað heitir. Nóg var að klifranlegum ís fyrir svona byrjendur eins og okkur. Atli Guðjóns 22. febrúar, 2010 at 10:25 #55212 Freyr IngiParticipant Freyr IngiParticipantAha Kistufellið er prýðis vettvangur fyrir þá sem vilja komast í alpafíling, mjög gott! Við fjórmenntum í Haukadal að kveldi fimmtudags og gistum í bændagistingunni að Stóra Vatnshorni. 
 Morguninn eftir var dimmur, él og vindur. Skoðun úr bíl leiddi í ljós að ís var helst til fátæklegur svona almennt séð. Fundum okkur þó viðfangsefni í skálinni beint fyrir ofan bæinn Hamra. (Man ekki nafnið á skálinni)Næst var stefnan tekin á norðurlandið eða nánar tiltekið á Kinnina. 
 Töluverður nýr snjór var á svæðinu sem hafði áhrif á aðkomu og leiðarval. Að vísu má segja að ísmagn hafi líka haft töluvert um leiðarval að segja en flestar leiðirnar hanga uppi, eru bara í „krefjandi“ aðstæðum um þessar mundir.Gaman að þessu. Freyr 22. febrúar, 2010 at 10:28 #55213 Páll SveinssonParticipant Páll SveinssonParticipantÞað er ein mjög góð mælistika á ísaðstæður í kinni. 
 http://www.flickr.com/photos/11245473@N02/4365856318/sizes/o/in/photostream/tekin 17 feb. 22. febrúar, 2010 at 13:07 #55215 SkabbiParticipant SkabbiParticipantHæ Var í Haukadalnum um helgina í öldungis frábæru veðri og skyggni. Ísmagn var þokkalegt, þó var sýnilega minnst í Skálagili. Töluverður ís var sjáanlegur í Stekkjargili og Bæjargili. Freyr, voruð þið í Stekkjargilinu? Við fórum línur utan þessara hefðbundnu gilja fyrir ofna Hamra og eyðibýlið Jörfa. Vel tekið á móti okkur í Stóra Vatnshorni eins og alltaf. Allez! Skabbi 22. febrúar, 2010 at 14:40 #55216 siggiwParticipant siggiwParticipantég ákvað að kíkka inn í hvalfjörð og endaði inn í brynjudal nánar tiltekið þrándarstaðar fossum þeir voru mjög blautir var því með top rope en þetta var samt skemtilegt. fór þarna tvær línur og þurfti að beita brögðum til að komast upp því þetta var soldið brothætt en komst upp vel blautur  
 kv.siggi villi
 ps. hvernig er það einhver stemning fyrir festivalinu einhverjir stakir?23. febrúar, 2010 at 14:08 #55219 SkabbiParticipant SkabbiParticipantSiggi Getur verið að netfangið (sigurdurvj08@u.is) þitt sé vitlaust skráð hérna? Reyndi að senda þér póst en fékk hann í hausinn aftur. Skabbi 23. febrúar, 2010 at 14:16 #55220 siggiwParticipant siggiwParticipantjább passar það á að vera @ru.is  23. febrúar, 2010 at 14:57 #55221 23. febrúar, 2010 at 14:57 #55221 Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÁ laugardag fór ég á fjöll ásamt Bergi og Tomma úr Hafnarfirði. Í bjartsýniskasti brunuðum við upp í Þórisjökul og enginn var ísinn þar. Í staðinn fóru við í Botnsúlur og klifruðu norðurhlið Háusúlu. Það var hið skemmtilegasta klifur í frábæru umhverfi og snilldar veðri. 23. febrúar, 2010 at 16:44 #55222 1908803629Participant 1908803629ParticipantHvernig er með Botnsúlur, er urmull af valkostum þar og er til eitthvað topo? (Ég gekk upp á Vestursúlu um helgina, loksins eftir margra ára fyrirætlanir að heimsækja súlurnar, og gerði mér fyrst þá grein fyrir því hversu magnaðar þær eru – og er spenntur fyrir alvöru action þar.) 23. febrúar, 2010 at 17:20 #55223 Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantSæll nafni. Heyrðu já það er fullt af skemmtilegu hægt að gera þarna. Við gengum upp frá Hvalvatni og þaðan er ekki nema klukkutíma gangur að Súlunum. Klifrið var það sem ég býst við að kallist skoskt. Þunnur ís utan á klettunum og hart „neve“ þess á milli. Frekar tortryggt (lesist tveir sæmilegir fleygar og ein drasl skrúfa á 50 metra spönn). Klifrið sem við völdum var nú samt frekar létt þannig að þetta var allt í lagi. Tvær spannir af klifri skiluðu okkur á toppinn rétt fyrir sólarlag. Setti inn nokkrar myndir hér. Man ekki eftir neinum leiðarvísi, sem gerir þetta bara ennþá áhugaverðara. bk. Ági 24. febrúar, 2010 at 10:44 #55233 1108755689Meðlimur 1108755689MeðlimurÞað eru leiðarvísar um botnssúlur í ársritum 1979 sem aðgengileg eru hér a vefnum fyrir meðlimi undir efni. Gamlir, en fullt af fróðleik. B 24. febrúar, 2010 at 21:02 #55247 0304724629Meðlimur 0304724629MeðlimurSmá vídeó frá því á sunnudaginn. Flott ný leið í Önundarfirði. Nafnið á leiðinni er í höfuðið á eyðibýlinu sem sést í upphafi. 
- 
		HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.




