Fyrsta grjótglímumót vetrarins.

Home Umræður Umræður Klettaklifur Fyrsta grjótglímumót vetrarins.

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44818
    2005774349
    Meðlimur

    Sunnudaginn 25. september klukkan 1400 verður fyrsta grjótglímumót vetrarins haldið í klifurhúsinu.

    Nánari upplýsingar á http://www.klifurhusid.is

    Hei!

    Hvað segið þið um þetta?

    Ís er fyrir mýs

    &

    búlder er fyrir berserki.

    Hjalti Rafn.

    #49999
    1704704009
    Meðlimur

    Berserkir voru plataðir ofan í heita pottinn í Heiðarvígasögu og soðnir lifandi, allsberir og lítt vörpulegir þá greyin.

    Berserkir voru líka plataðir í Grettissögu og strádrepnir aumingja greyin, vopnlausir og blindfullir í partýi.

    Og Ljótur hinn bleiki var svo upptekinn af eigin berserksgangi að hann tók ekki einu sinni eftir því þegar skildinum hans var sparkað upp í hann og eftir lá hann í grasinu neðri kjálkanum fátækari.

    Búlder er fyrir berserki. Ekki leiðum að líkjast.

    #50000
    2005774349
    Meðlimur

    Formaður Ísalp hefur hér tilkynnt þátttöku sína á mótinu.
    Þátttaka skráð.

    Annars er óþarfi að skrá sig, nóg að mæta og klifra.

    Hlakka til að sjá sem flesta.

    HRG

    #50001
    1704704009
    Meðlimur

    Hættu þessu dútli og verðu þig almennilega. Fáðu lánsverjur ef þú átt aungvar sjálfur.

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.