Esjuferð á miðvikudag

Home Umræður Umræður Almennt Esjuferð á miðvikudag

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45045

    Góðan dag góðir hálsar. Ég minni á Esjuferð klúbbsins á miðvikudag. Hittingur á Mógilsá klukkan 18, fararstjórar verða Ágúst Þór og Henrý Hálfdánsson. Gengin verður venjulega gönguleiðin upp í miðjar hlíðar og svo tekin beygja til austurs í átt að Gunnlaugsskarði. Svo er farið upp skarðið og stefnan tekin á útsýnisskífuna á Þverfellshorni. Hefðbundnu gönguleiðinni fylgt niður. Góð kvöldferð eftir vinnu og vissara að mæta með eitthvað ljósmeti til að lýsa sér í síðsumarsrökkrinu á niðurleiðinni.

    #50604

    Þessi ferð var nú frekar fámenn var farinn samkvæmt áætlun í ágætis veðri en frekar lélegu skyggni. Leiðin upp Gunnlaugsskarð er mjög skemmtileg en verst var að við sáum ekkert fyrir þoku og sudda.

    ági

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.