Bráðum fær Ísalp nýjan vef

Home Umræður Umræður Almennt Bráðum fær Ísalp nýjan vef

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45497
    0309673729
    Participant

    Ég fékk vinsamlega fyrirspurn um hvort ég gæti ekki sett umræður, greinar og myndir aftur inn á Ísalp-vefinn. Ekkert mál, hérna er umræðusíða Ísalp og vísun á greinarnar er að finna í efnisyfirlitinu. Þeim er raðað eftir dagsetningu. Bráðum verður þessari síðu síðan skipt út fyrir nýja og glæsilega vefsíðu nýju vefnefndarinnar.

    Nýja vefnefndin vinnur nú hörðum höndum að nýju síðunni. Í henni eru Halli Guðmunds, Stefán Örn og Óli Raggi. Samkvæmt staðfestum fregnum (sjá veggjalys.blogspot.com 29.9.03) lenti Stefán þó reyndar í alvarlegu „óhappi“ og er því óvíst hvort hann geti unnið við tölvu. Á móti kemur að samkvæmt sömu fregnum hefur Halli misst vinnuna vegna ósæmilegrar hegðunar og getur því einbeitt sér að fullu að nýju vefnum.

    með kveðju
    Helgi Borg

    #48140
    0405614209
    Participant

    Blessaður Helgi.

    Stórfínt, stórfínt.

    Kveðja
    Halldór formaður

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.