Ársritið – on the cover of the Rolling Stone

Home Umræður Umræður Almennt Ársritið – on the cover of the Rolling Stone

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46637
    Jón Haukur
    Participant

    Sælt veri fólkið, Ísalp ársrit síðasta áratugar er á leið í umbrot í í dag. Okkar vantar ennþá forsíðumynd. Ef einhverjir luma á góðum myndum eða þá hafa skoðun á því hvernig mynd á að vera á forsíðunni væri mjög gott að fá slík komment hér og nú þannig að við þurfum ekki að hlusta á nöldur ákveðinna stétta um að verið sé að gera einum armi fjallamennskunnar hærra undir höfði en öðrum.

    jh

    jonh@lh.is

    #47747
    0309673729
    Participant

    Ég styð eitthvað af þessu þrennu — skilyrðislaust mynd frá Íslandi!
    Grjótglímumynd
    Stigaklifurmynd
    Telemarkmynd

    #47748
    0902703629
    Meðlimur

    Bíðum nú við!

    Hvar endar þessi óendanlegi hroki í garð annarra skíða- og brettamanna, – sem eru jú meirihluti landsmanna. Nægir ekki að segja „skíðamynd“ þarf að gera Telemarkinu hærra undir höfði? Vissulega er telemark íþrótt sem sækir á og ef til vill stundar meirihluti félagsmanna Ísalp laushæla og lausbeislaða skíðamennskuna sem ættuð er frá frændum vorum Norðmönnum. En hinu má ekki gleyma að stór hluti fólks stundar skíða- og brettamennsku af ýmsu tagi og frá mínum bæjardyrum séð er munurinn á þessu fólki og TELEMÖRKURUM sáralítill.

    Ég styð eindregið tillöguna um grjótglímumynd, stigaklifurmynd eða skíðamynd, og ég móðgast ekki ef það verður telemarkmynd en mér finnst allt í lagi að benda á að telemark er þegar öllu er á botninn hvolft skíðamennska. – Þó að margir telji íþróttina heyra undir annan flokk, – trúarbrögð. En þá er maður kominn út í aðra sálma. Hallelúja!

    #47749
    1705655689
    Meðlimur

    Mér lýst nú ágætlega á myndina af Kalla, þá ætti enginn að móðgast.

    #47750
    0309673729
    Participant

    Ég er á því að forsíðumyndin eigi að vera af sporti sem ÍSALParar stunda. Þegar brettagarpar fara að sýna sig innan raða ÍSALP í auknum mæli, og þegar þeir fara í auknum mæli á fjöll, en ekki bara á skíðasvæðin — þá fyrst eiga þeir erindi á forsíðu ársritsins.

    Svo var það hetjan okkar hann Haraldur Örn — hefur hann unnið sér inn heiður að forsíðumynd?

    Að auki finndist mér kostur ef að forsíðumyndin væri í fókus að þessu sinni.

    #47751
    0311783479
    Meðlimur

    Hvernig væri að hafa svona „alpínista“-mynd, ættaða úr einhverjum glæsilegum fjöllum t.d. úr Andes-ævintýri þeirra Sigga, ÓlaRagga, Ívars og Rúnars?

    #47752
    Sissi
    Moderator

    Ég treysti nú því að menn munu finna flotta mynd á forsíðuna og finnst nú reyndar bara spurning um að finna nokkrar góðar og velja svo úr eftir gæðum.

    Hitt er annað mál að mér finnst þessar dylgjur í garð okkar brettamanna FÁRÁNLEGAR. Ef þið haldið að allir sem renna sér ekki á einhverjum prikum með hælinn út í loftið nenni ekki að labba á fjöll er alvarlega farið að slá saman hjá ykkur strákar.

    Brettamenn eru ekki bara bólugrafnir unglingar sitjandi á rassgatinu með sígó uppi í Bláfjöllum.

    Þetta er risavaxið sport og ég leyfi mér að fullyrða að það eru mun fleiri brettamenn að klifra og renna sér flottar línur en telemarkarar (enda 50-100* stærra sport). Spurning um að hlúa að þeim og lokka þá í klúbbinn í stað þess að skjóta á þá.

    Taggfyrir.

    Sissi

    #47753
    2510815149
    Meðlimur

    Æ, voða er þetta e-ð viðkvæmt allt. Skiptir þetta einhverju máli hvað og hver verður á þessari forsíðu svo lengi sem það er mynd sem er vel tekin og lítur vel út.

    Annars vil ég nú helst hafa Klettamynd af manni í five-ten skóm og með hælinn út í loftið….. ekki einhvern með hælana niður með prik í höndunum að klifra svell…

    #47754
    0912812959
    Meðlimur

    Ein hugmynd! Það er hægt að fá einhvern flinkan tölvugúru, grafískan hönnuð eða prentsmið til að sníða mynd á forsíðuna þar sem vinna á með :
    Grjótglímumynd, Stigaklifurmynd og Telemarkmynd.
    Þetta er pæling…

    #47755
    2806763069
    Meðlimur

    eruð þið ekki að grínast??
    Var þetta umræðuefini bara til að koma af stað rifrildi?

    Auðvitað verður forsíðumyndin af Rúnari Óla með Reinhold Messner. Halló! Er ekki í lægi með ykkur?

    #47756
    Jón Haukur
    Participant

    En hvað með einhvern frýgjarnan portrett eins og var framan á Björgun fyrir jólin? Það væri nú í anda Rock&Ice og fleiri blaða?

    jh

    #47757
    AB
    Participant

    Ja hérna. Sissi er greinilega að missa sig algjörlega. Gaman að því. Það er rétt að óþarfi er að vera með dylgjur í garð brettafólks, en ég held nú að meginþorri Ísalpara sé ekkert að agnúast út í brettin og brettafólk. Hins vegar er það staðreynd snjóbretti hafa ekki hingað til tengst fjallamennskunni eins sterkum böndum og telemark og fjallaskíði af þeirri einföldu ástæðu að bretti eru þung í burði ( þungar byrðar=leiðindi) og henta ekki vel til uppgöngu fjalla þó að sjálfsögðu megi axla plankann og þramma af stað. Ekki mundi ég nú samt vilja klifra bratt, með brettið á bakinu.
    Það þýðir ekkert að vera í fýlu þótt þróun íslensks fjallamennskusamfélags sé á því stigi að telemark er stærri hluti þess en snjóbretti.
    Annars er lang skemmtilegast að klifra….
    Ég læt eina stöku fljóta með:

    Telemark er tussusport
    tilgangslaust á fjöllum.
    Slappleiki af þeirri sort
    skemmtir ekki öllum.

    Þar með hef ég væntanlega fyrirgert rétti mínum til að mæta á Telemarkfestivalið. Amen.

    #47758
    Jón Haukur
    Participant

    Íbbi harðkorna var líklegast sá eini sem sá í gegnum plottið. Það er greinilega ennþá lífsmark á þessum vef, en ekki bara hátíðlegar yfirlýsingar stjórnanda klúbbsins og annað taut yfir heldur aumingjalegar aðstæður fyrir sportið um þessar mundir sökum gróðurhúsaáhrifa.

    Það var hins vegar eins og vænta mátti margir sem höfðu skoðun en enginn hefur skilað mynd ennþá. Þannig að við tökum líklegast björgunarjólasveininn og setjum ísalp merki á derhúfuna hans og klakadrjóla í skeggið og þá er þetta barasta í höfn.

    að eilífu ekki amen

    jh

    e.s. hitti Olla í Bláfjöllum áðan í öngum sínum yfir því að enginn skildi hafa nennt að þramma Eilífsdalinn með honum, hvar er nú æska þessa lands.

    #47759
    1709703309
    Meðlimur

    Ég hefði helst viljað sjá mynd af Rúnari Óla með sleif í hendi bograndi yfir gúllasréttinum sem hann flamberaði handa þeim fáu sem komu á íklifurfestivalið í fyrra. Uppskriftin yrði svo auðvitað útlistuð á fyrstu opnu blaðsins. Að borða er hvort sem er það eina sem hægt er að gera þessa daganna.

    Hilsen pilsen,

    Stebbi

    #47760
    Sissi
    Moderator

    Hehe – fyndið plott.

    Annars sé ég núna að það er hommalegt að vera á bretti, jafnvel þó að það sé hægt að setja skinn á split-board og labba á þeim, jafnvel þó að það sé þess virði að burðast með þau klukkutímum saman því það er miklu skemmtilegra að renna sér til baka, og lofa að fá mér telemark við fyrsta tækifæri. Brettin fóru í ruslagáminn í gær og nú verður bara gore-tex og sveifla í fjallinu sko!

    Annars væri nú gaman að sjá nokkra kandídata fyrir forsíður hér á vefnum. Og bara myndir frá mönnum almennt.

    Telemarkkveðjur,
    Sissi

15 umræða - 1 til 15 (af 15)
  • You must be logged in to reply to this topic.