Af gefnu tilefni

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Af gefnu tilefni

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45031
    2806763069
    Meðlimur

    Öll klifurnámskeiðin sem auglýst eru á síðunni eru haldin af Ísalp og ÍFLM og framkvæmd af ÍFLM. Stærstur hluti þátttakenda kemur í gegnum netklúbb ÍFLM og er því aldrei skráður hér á síðunni. Það segir því ekkert um líkur á að námskeiðið sé haldið þó fáir séu skráðir á þessa síðu.

    Þeir sem skrá sig hér á námskeið ættu einnig að senda póst á ivar@mountainguide.is. Ég mun þá svara með ýmsum upplýsingaum um námskeiðið svo sem tímasetningum, útbúnaðarlistum og greiðslu upplýsingum.

    Sem stendur er nokkuð öruggt að næg þátttaka fæst í Ísklifur II og í Vetrarfjallamennsku, þeir sem áhuga hafa á þessum námskeiðum ættu að skrá sig hið fyrsta til að tryggja sér sæti.

    Einhver sæti eru laus á auka byrjendanámskeið í ísklifri sem halda á næstu helgi. Ég hvet því þá sem áhuga hafa á því að láta vita sem fyrst.

    Að lokum minni ég á útbúnaðarleigu ÍFLM þar sem leigja má allan klifurbúnað og nú nýlega einnig Scarpa Vega plast skó.

    kv.
    Ívar

1 umræða (af 1)
  • You must be logged in to reply to this topic.