Re: Versnandi spá

Home Umræður Umræður Almennt Botnssúlnaferðin Re: Versnandi spá

#48517
1704704009
Meðlimur

Allt í lagi Kristján og góða skemmtun. Annars er spáin fyrir morgundaginn að versna ef eitthvað er og nú segir Veðurstofan 25 m/sek í strengjum við fjöll. Smárok og rigning skaðar engan en við verðum víst að játa okkur sigraða ef það er beinlínis spáð stormi á morgun. Botnssúlur eru ekki ákjósanlegur staður í stormi. Ferðin er því í uppnámi sem stendur. Tökum síðasta veðurtékk í kvöld og athugum hvort þetta lagist eitthvað. Tilkynni ákvörðun á vefnum fyrir kl. 19 og hringi í skráða þátttakendur.