Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › !! Varúð-Klassísk!! › Re: svar: !! Varúð-Klassísk!!
Sko, þetta er ekki meira planað en svo að það sem við viljum fá útúr þessu er að eiga lista yfir ísleiðir (skíða- og klettaleiðir síðar) sem skemmtilegt er að klifra.
Eftir að sá listi er kominn er hægt að sinna þeim almennilega, gefa út tópó með klassíkerum og þannig benda nýjum og gömlum á skemmtilegt klifur.
Svo má nátturlega taka þetta lengra og gera lista yfir klassíkera í mismunandi gráðum.
T.d
WI3 – Spori í Kjós
WI4 – 55° í Búhömrum
WI5 – Þilið í Eilífsdal
nota bene listinn er ekki endilega endanlegur svo að ekki nýta tækifærið og fara í fýlu ef að uppáhaldsleiðin þín er ekki á listanum.
Óska eftir tillögum í listann og vonast til að sjá sem flesta á miðvikudaginn.
Freysi