Re: svar: Styrkir til klifurs

Home Umræður Umræður Almennt Styrkir til klifurs Re: svar: Styrkir til klifurs

#53057
0310783509
Meðlimur

Já afrekssjóður ÍSÍ er möguleiki, einusinni í öðru lífi man ég eftir að hafa kríað út pening úr þeim og þessi blessaða klifur íþrótt er jafn á skjön við allt og mín var þá virðist vera, best væri ef þú gætir bara athugað hvernig hægt er að breyta klifri í bolta hóp íþrótt og þá ertu á grænni grein hjá ÍSÍ.
Annars myndi ég sennilegast koma saman CV eða ferilskrá um sjálfan mig, fáðu eitthvern til að hjálpa þér með textann svo þetta verði ekki of hógvært eins og við Íslendingar erum vanir að hafa það. Skelltu þér svo í þau fyrirtæki sem hafa eitthvað að gera með klifur og legðu fram tillögu að styrk. Byrjaðu að tala almennt við hann Halldór í Fjallakofanum, hann tekur örugglega vel á móti þér, færðu þig svo fjær kjarnanum eftir það. Gott er að hafa í tillögunni ákveðið tímabil í huga eða ákveðið mót þegar beðið er um styrki, finndu út hver á strák eða stelpu sem hefur áhuga á klifri (sem hangir í Kl.húsinu) og pabbi/mamma þeirra rekur/starfar hjá stærra fyrirtæki pantaðu tíma og kynntu þeim tillögu þína.

Best kannski að hafa í huga að það er nánast full vinna að safna styrkjum og því betur sem þú vinnur að því þeim mun meira færðu borgað.

Bonne Chance
Einar Ísfeld