Re: svar: myndir af festivali

Home Umræður Umræður Almennt myndir af festivali Re: svar: myndir af festivali

#51204
Karl
Participant

Það er gaman að sjá þessar myndir úr Kinninni.

Til upprifjunnar vil ég geta þess að þegar við Tómas klifruðum Stekkjarstaur þá var hann klifraður uppúr og gengið út úr leiðinni til suðurs. Það var einfaldlega tíðarandinn á þeim árum og leið þótti ekki kláruð nema „ganga uppúr“
Þannig voru Sólhvörf, Danska leiðin, Frygðin, Girndin, Drífa ofl klifraðar.
Leiðin var klifin í tveim spönnum með 50 m línu.
Ég leiddi fyrri spönn og þegar línuna þraut þá brölti Tommi á eftir á hlaupandi tryggingum þangað til ég komst í góðan stans undir efri lóðrétta hlutanum. Þetta endurtók sig í seinni spönn þar sem ég elti Tomma þegar línuna þraut.
LYKILKAFLI leiðarinnar fólst í því að komast uppúr fossinum. Þar endaði Tommi leiðina á 10 metra „runnout“ í ótryggjanlegum andskota og lafþunnri ísskel utaná klettinum í töluverðum vatnselg. Það er líklegtt að hefðum við kunnað Abalakov þræðinguna þá hefðu við sigið niður og ég mæli í raun með þeirri aðferð vegna þess að hlíðin ofanvið er ekkert sæluríki.
En í ljósi þess hvernig Tommi leiddi lykilkaflan hér um árið þá finnst mér í raun að leiðin hafi aldrei verið endurtekin að fullu….