Re: svar: Cintamani styrkur?

Home Umræður Umræður Almennt Cintamani styrkur? Re: svar: Cintamani styrkur?

#52700
Freyr Ingi
Participant

Sæll Tryggvi,

málið er að upphaflega kemur hugmyndin ekki frá Ísalp heldur fjallamanninum Jökli Bergmann. Á sínum tíma seldi hann Cintamani hugmyndina að leiðangursstyrknum og er það vel enda frábært framtak og glæsilegt að að Cintamani vilji halda áfram að styrkja íslendinga með stóra fjalladrauma.

Díllinn er semsagt þannig að Ísalp kemur aðeins að þessum styrk með því að leggja til einn mann í 3 manna dómnefnd.
Á síðasta ári var það Skarphéðinn Halldórsson sem gegndi því á móts við Harald Örn Ólafsson og Jökul Bergmann sem eru fastráðnir dómarar.
Þeir teljast þó áfram vera Ísalp-arar

Í fyrra komu inn 3 styrkbeiðnir og sú sem hljóta átti styrkinn var ferð niður til Patagoniu, nánar tiltekið á Fitz Roy.
Flott ferð en vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna varð ekkert úr þeim plönum á síðasta ári.

Eins og staðan er núna veit ég ekkert um þessa árs styrk.
Hvorki hvort skilafresturinn verði framlengdur aftur eða hvort einhverjar umsóknir hafi þegar borist.

Ég skal aftur á móti grafast fyrir um málið og láta vita þegar eitthvað fréttist.

Góðar stundir.

Freysi