Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › búlder og jafnvel meira við Akrafjall? › Re: svar: búlder og jafnvel meira við Akrafjall?
Jæja gústi við kíktum þarna um daginn og urðum ekki fyrir vonbrigðum! Eðal steinar um 4-6 metrar á hæð og flatt gras undir. Skrýtið að maður hafi ekki farið þangað áður! Þarf að kíkja þangað aftur og klára verkefnið mitt Eitt nýtt svæði kannað og mörg eftir. Held að nýjungar í klettaklifri á íslandi liggji að mestu í búldrinu og hef verið að rannsaka þetta að undanförnu og fundið áhugaverða staði sem lofa góðu stutt frá höfuðborginni (1-2 klst). Sumt af þessu eru klettabelti sem eru á mörkunum að vera línuklifur eða búlder. Hef líka verið mikið á austfjörðum og fundið eðal probba m.a. á Seyðisfirði og í kringum Egilsstaði. Svo er bara málið að taka höndum saman og gera alsherjar topo af klettaklifri á Íslandi er það ekki? Kannski að fleirri leyni a leyndum stöðum sem þeir vilja deila með almúganum.
kv. Öddi
ps. Gústi verðuru ekki reddí í Hraundrangan í lok sumars??