Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Snjóalög á Fimmvörðuhálsi. Er skíðafæri? › Re: Re:Snjóalög á Fimmvörðuhálsi. Er skíðafæri?
26. mars, 2010 at 13:37
#55345
0503664729
Participant
Palli,
Ég labbaði upp að gosstöðvunum í gær, fimmtudag. Ég mæli ekki með skíðum. Það er frekar langt labb upp í snjó (600-700 m hæð) og það er þó nokkur aska á snjónum og það hjálpar ekki.
Lagði upp vestan Drangshlíðarfjalls en það er frábær leið (getur fengið track ef þú villt)og engin umferð.
Við byrjuðum að labba kl. 7 og það mátti ekki seinna vera. Þetta er leiðinlegt ef menn fara seinna af stað og lenda í drullu og mjúkum snjó.
Við vorum 4,5 tíma frá vegi og upp að gígnum þar sem við stoppuðum í 2,5 tíma í blankalogni.
Það að standa við gíginn er engu líkt og erfiðisins virði og meira en það.
Kv,
Jón Viðar