Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifur um helgina í stað festivals › Re: Re:Ísklifur um helgina í stað festivals
Aha Kistufellið er prýðis vettvangur fyrir þá sem vilja komast í alpafíling, mjög gott!
Við fjórmenntum í Haukadal að kveldi fimmtudags og gistum í bændagistingunni að Stóra Vatnshorni.
Morguninn eftir var dimmur, él og vindur. Skoðun úr bíl leiddi í ljós að ís var helst til fátæklegur svona almennt séð. Fundum okkur þó viðfangsefni í skálinni beint fyrir ofan bæinn Hamra. (Man ekki nafnið á skálinni)
Næst var stefnan tekin á norðurlandið eða nánar tiltekið á Kinnina.
Töluverður nýr snjór var á svæðinu sem hafði áhrif á aðkomu og leiðarval. Að vísu má segja að ísmagn hafi líka haft töluvert um leiðarval að segja en flestar leiðirnar hanga uppi, eru bara í „krefjandi“ aðstæðum um þessar mundir.
Gaman að þessu.
Freyr