Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › klifur í dag › Re: Re: Svar:klifur í dag
2. apríl, 2010 at 16:49
#55366
Sissi
Moderator
Fór með Halla Gúmjárni, Gerald félaga hans og Frey Inga formanni í Spora í dag. Fínn ís, rennandi blautur efst samt. En það kom ekki að sök. Tókum aðkomuhöftin líka sem var bara ansi gaman. Fossarnir austanmegin í skarðinu voru ansi morknir (Hrynjandi, Áslákur etc).
Hittum nokkra hressa Akurnesinga á heimleiðinni sem voru að klifra í aðkomuhaftinu (Mígandi? man þetta aldrei).
Dóri og co voru víst á ferðinni í Kjósinni í gær, svo þetta er ekki alveg búið.
Kveðja,
Sissi