Reply To: Ísklifuraðstæður 2017-18

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifuraðstæður 2017-18 Reply To: Ísklifuraðstæður 2017-18

#64736
Siggi Richter
Participant

Þar sem vegagerðin hélt því fram að Eyjafjöllin hefðu sveiflast um einhverjar 12°C á innan við fimm tímum í nótt, létum við Paradísarheimtina bara vera í morgun og kíktum heldur í Bolaklett.
Ég veit ekki hvort ég eigi að lofa eða lasta aðstæður þar, þar sem við höfum ekki komið þangað áður, en af myndum að dæma virðast innri leiðirnar vera eitthvað í þynnri kanntinum miðað við venjulega, og mixleiðirnar gætu alveg þegið nokkra metra af ís í viðbót (gott top-out samt).
Hins vegar er „bara ef mamma vissi“ í frábærum aðstæðum, stórskemmtilegt klifur sem er max WI4 í þessu árferði.