Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ýringur
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
4. apríl, 2013 at 09:43 #44534
3103833689MeðlimurFór með Snæbirni í Ýring 24 mars. Áttum fáránlega góðan fyrripart,sól blíða og fínasti ís. Reyndum við síðasta haftið sem var þurrt og bratt en það fór ekki betur en svo að Snæbjörn datt í aðra skrúfu sem var frekar tæp og poppaði út, féll hann því til jarðar. Eitthvað hefur efri skrúfan tekið af þessu 12m falli því kappinn stóð upp með kúlu á höfði og brotna hendi. Náðum að ganga útúr leiðinni og sigum honum niður grýtta brekkuna og að bílnum.
Við erum ferlega sátt með að þetta fór ekki verr og biðjum fólk að fara varlega í vorblíðunni.
4. apríl, 2013 at 10:38 #58272
Björgvin HilmarssonParticipantJahá! Gott að ekki fór verr. Aðeins nánar… hversu hátt var hann kominn yfir skrúfuna, var skrúfan tæp þannig að hún stóð út úr eða var ísinn bara drasl? Einhverjar myndir til af þessu?
5. apríl, 2013 at 01:28 #58275
3103833689MeðlimurHér eru nokkrar myndir frá þessum eftirminnilega degi ma mynd af efsta haftinu. http://heidaj.smugmug.com/Other/%C3%9Dringur/28760974_KV32j4#!i=2441431157&k=WKX4RjV
Hann að var að klifra vinstramegin við regnhlífina. Skrúfan var ca 2-3m fyrir neðan hann. Held að hann hafi verið að stíga upp á regnhlífina þegar axirnar gáfust upp á ísnum.
Frá mínu sjónarhorni virkaði ísinn ansi þurr. Snæbjörn getur kannski gefið betri upplýsingar um stöðu skrúfunnar.
5. apríl, 2013 at 14:37 #58278
Arnar Þór EmilssonParticipantTakk fyrir að deila þessu. Gott að ekki fór verr.
b.kv Arnar -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.