Verkalýðsfélagið og fleira í Tvíburagili

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Verkalýðsfélagið og fleira í Tvíburagili

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46312
    AB
    Participant

    Við Freysi fórum í gilið góða í dag og drifum með okkur tvo nýliða í sportinu, þá Billa og Einsa. Þeir kumpánar léku sér í efri Tvíburafossinum og skemmtu sér konunglega.

    Ég klifraði nýja leið sem ég boltaði á sunnudaginn. Hún heitir Verkalýðsfélagið. Nýskráning leiða:

    http://isalp.is/route.php?op=l&t=1

    Fyrir skemmstu settum við Freysi tvo bolta fyrir toppankeri ofan við leiðina og þá má eflaust nýta fyrir nágrannaleiðir framtíðarinnar.

    Næst var Síamstvíburinn klifinn og vottast það hér með að sú leið er fjári góð.

    Fljótlega komu svo Bjöggi og Siggi T og réðust á hinar og þessar leiðir. Við héldum heim á leið en Skabbi mætti galvaskur stuttu eftir það. Þeir vilja eflaust úða dálítið sjálfir um sín afrek.

    Nóg að gerast.

    Kveðja,

    AB

    #53792
    Sissi
    Moderator

    Too cool for school.

    S

    #53793
    0101773679
    Meðlimur

    Algjörlega mjög gaman. Fint veður og skemmtilegt svæði og topp félagsskapur.

    Fín ástæða til að skrópa í skólann í gær ;)

    kv
    Billi

    #53794
    Arnar Jónsson
    Participant

    Til hamingju með þessa leið Andri, flott að þú náðir að klára þetta núna. Þú varst alveg skuggalega nálægt því síðast ;)

    Kv.
    Arnar

    #53795

    Já við Siggi mættum um eittleytið uppeftir. Hituðum upp í HFF en þar er ísinn efst farinn að morkna vel og kertin sem maður hliðrar framhjá á hraðri niðurleið. Réðumst svo til atlögu að Símastvíburanum og lögðum hann af velli eftir að hann hafði hrist okkur af sér nokkrum sinnum. Mjög skemmtileg leið.

    Siggi gerði sér svo lítið fyrir og krúsaði upp Himinn og haf í annarri tilraun. Vel af sér vikið. Skabbi mætti eitthvað á eftir okkur og við mátuðum okkur aðeins við leiðina líka en ekki varð mjög mikið úr því. En þessar neðstu hreyfingar eru hressandi, we’ll be back.

    Eftir að Siggi massi þurfti frá að hverfa þá laumuðumst við Skabbi í Verkalýðsfélagið. Langaði að tékka aðeins á henni án þess að gera okkur miklar vonir. Skemmst frá að segja þá gekk það ekki, þessi byrjun er ekkert grín. Líklega ekki það viturlegasta að reyna sig við hana í lok dags. But one day… one day. :)

    Eiríkur mætti uppí gil rétt undir myrkur, þá að koma beint úr Ýringi. Hann eðlilega vildi ólmur fá að berja hið nýa rocodromo Reykjavíkur augum og leist vel á.

    Siggi var með vélina sína og við smelltum af nokkrum myndum. Lofum engu fyrir festival. En svo fer ég að drattast til að setja inn myndirnar af Robba í fyrst uppáferð í Himni og hafi, góðir hlutir gerast hægt ;)

    #53796
    Siggi Tommi
    Participant

    Já, prýðilegt var þetta þó tíminn væri knappur.
    Fór Himin og haf nú ekki í annarri, þar sem ég datt ítrekað í fyrstu löngu teygjunni en þegar ég loksins náði henni fór ég alla leið upp. Ætli föllin hafi ekki verið ca. 4.
    Síams og Himinn/haf báðar sérdeilis fínar leiðir. Þarf að prófa Verkalýðsfélagið í næstu ferð.

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.