var að berast – fundin ísexi

Home Umræður Umræður Almennt var að berast – fundin ísexi

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45425
    0309673729
    Participant

    Sælir

    Hingað á lögreglustöðina á Akureyri rataði blá ísexi sem hafði fundist fyrir utan veitingastaðinn Mongó þann 28. apríl. Eigandinn hefur ekki vitjað exinnar og því datt okkur í hug hvort þið gætuð auglýst hana á umræðusvæði isalp.is

    Um er að ræða bláa Camp Jolly gönguexi með bláum fetli. Á skaftið er límdur miði sem á stendur KR.4390 með rauðum stöfum.

    Eigandinn getur vitjað exinnar á lögreglustöðina eða haft samband í síma 464-7700

    Með bestu kveðju

    Kári Erlingsson
    Lögreglunni á Akureyri
    Sími: 464-7700
    Fax: 464-7701
    Netfang: kari.erlingsson@tmd.is

    #50492
    2806763069
    Meðlimur

    Hér er komið blátt hjól. Kannast einhver við það. Númerið á lásnum er inn, út, inn, inn, út.

    Var þetta ekki einmitt líka á Akureyri?

    kv. Dúddi Hardcore.

    P.s. Djöfull var góður skíðasnjór á Hnjúknum (verst að vera ekki á skíðum). Nægur snjór niður í 700m á Sandfellsleiðinni.

    #50493
    Anonymous
    Inactive

    Hvað segir þú Íbbi er Virkisjökullinn ófær eða??
    Hvað eru menn að gera á Sandfellsleiðinni ef Virkisjökulinn er fær???
    Olli

    #50494
    2806763069
    Meðlimur

    Nei Vikisjökullinn er fínn. Það er bara auðveldara að fara Sandfellið. Svo var búið að snjóa gríðalega og ég hafði áhyggjur af snjóflóðahættu (sem var reyndar ekki rauninn).

    Ívar

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.