Útivist er fyrir ALLA..

Home Umræður Umræður Almennt Útivist er fyrir ALLA..

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47253
    Andri
    Meðlimur

    Langaði að benda mönnum á nýjan þátt Spenna.is á MBL.is Sjónvarpi
    Þar er rætt við Leif sem hefur alla tíð verið í hjólastól en lætur það ekki stoppa draum sinn um að fara sjálfur uppá fjöll!

    Maður getur ekki annað en tekið að ofan fyrir svona snillingum!

    Þáttinn má sjá hér

    #56782
    0801667969
    Meðlimur

    Frábært framtak. Leifur hittir naglann á höfuðið. Menn eru allt of oft að setja fyrir sig smáatriði eins og ekki nógu góður búnaður eða að líkamlega atgervið sé ekki nógu gott eða „rétt“ sem afsökun fyrir að fara ekki á fjöll.

    Ekki fyrir svo löngu síðan var ég að pakka niður Smjörvastykki fyrir Hnjúksferð (á vegum ÍFLM). Ívar „alltofgranni“ hafði það á orði við útlendinga sem horfðu upp á þetta; „ you see, Árni has to keep his figure “ .

    Auðvitað eiga menn ekki að vera í lélegu formi en gamlir fjólubláir Skarpa skór og bumban út í loftið eiga ekki að aftra mönnum frá því að stunda útivist.

    Er mjög ánægður að sjá hvað þetta ævintýri Leifs hefur gengið vel. Seinni part vetrar benti ég á Jóa Kjartans stálskipa- og þúsundþjalasmið í sambandi þetta verkefni . Svo virðist sem Jóhann hafi leyst tæknilega hlið málsins og á miklar þakkir skyldar.

    Þess má geta að sami snillingur hannaði skíðasleðana (skíðapúlkur) sem hafa sannað sig í gönguskíðaferðum og mikil eftirspurn er eftir.

    Kv. Árni Alf.

    P.S. Við getum alveg tekið aðra púlkuumræðu ef Ívar er spenntur.

    #56788
    0703784699
    Meðlimur

    Var þetta 500gr smjörstykki? Mér leikur forvitni á að vita af hverju þú smurðir ekki áður en lagt var í hann, og/eða hvað þú varst að gera með svona stykki. Kannski hafði Ívar rétt f. sér eftir allt saman?

    kv.Einn sem er voða forvitinn um tilburð þessa smjörstykkis

    PS: annars hef ég sagt það oftsinnis áður að það skiptir öllu að líta vel út á fjöllum….þú hefur klárlega ekki séð White Man Can´t Jump hér um árið Árni, eða?

    #56791
    0801667969
    Meðlimur

    Það þótti alltaf gott að hafa smá smjörklípu meðferðis þegar fé var heimt af Fjalli. Í dag er Smjörvastykki það sem venulega er handhægast og við hendina.

    Það þótti aldrei gott þegar fé féll úr hor. Mannfólkið fylgdi gjarnan í kjölfarið.

    Kv. Árni Alf.

    P.S. Nei, hef ekki séð þessa mynd.

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.