týndir skíðastafir og þelamerkurfestival

Home Umræður Umræður Almennt týndir skíðastafir og þelamerkurfestival

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46238
    1410693309
    Meðlimur

    Tókst að gleyma skíðastöfunum á bílastæðinu við Kaldbak. Um er að ræða einn grænan Black Diamond staf og einn bleikan Leki staf, en saman mynda þessar stafir einstaka og úthugsaða heild. Hefur einhver orðið var við parið?

    Vil annars nota þetta tækifæri til að þakka fyrir frábært þelamerkurfestival. Skipuleggjendur eiga mikinn heiður skilinn. Leist afar vel á aðstæður á Sigló í gær. Er ekki málið að halda næsta mót á Sigló?
    Kv. SM

    #48576
    0311783479
    Meðlimur

    Við sáum þessa stafi þegar vorum að leggja af stað og þar sem við vorum ekki viss hvort þetta væri frá markara eður ei þá þótti okkur best að láta þá Súlumenn taka þá með sér. Þeir settu þá í snjóbílinn sinn og ætluðu að láta þau Bassa, Kristínu og Böbba vita, þa. þau ættu að geta mixað þetta fyrir þig.

    Þakka undirbúnings- og framkvæmdanefndinni fyrir frábær störf !!!

    -kv.
    Halli

    #48577
    0704685149
    Meðlimur

    Þökkum öllum sem komu, það var stórskemmtilegt að hafa ykkur. Set saman pistil á næstu daga með myndum.

    Kveðja
    Bassi, Böbbi, Kristín og Helga.

    #48578
    0402764759
    Meðlimur

    Og hvenær fáum við sem heima sátum og létum okkur dreyma um snævi þakktar brekkur, myndir af herlegheitunum??

    #48579
    0704685149
    Meðlimur

    Læt ekki bíða eftir mér, hér eru tvær slóðir sem ég fann á netinu strax. Skoðið vel myndasíðu 12 á fyrri linknum, þar er hart barist um að komast í mark, öllum brögðum beitt, það var leyfilegt.

    http://www.the-saga.net/images/uploads/Telemark-3-04/
    index.html

    og svo

    http://www.pbase.com/krazny/telemark

    kv. Bassi

    #48580
    Goli
    Meðlimur

    Takk fyrir okkur, þetta var miklu meira en frábært !!!

    #48581
    0801667969
    Meðlimur

    Vissi svo sem ekki við hverju var að búast en þetta fór langt, mjög langt fram úr mínum björtustu vonum. Fjöllin, færið mannskapurinn og veðrið, allt var í topp gír. Þakka fyrir mig.

    #48582
    0704685149
    Meðlimur

    Skúli! Stafirnir þínir eru komnir til mín,
    Sendi þá til þín einhvern veginn.

    Síðan er í óskilum Mountain Hardware, svartir fingravettlingar, hjá Önnu Maríu úr HSSR
    Kv.
    Bassi

    #48583
    0704685149
    Meðlimur

    Var að renna í gegnum myndirnar, hér er dæmi um að það var reynt að nota alla tækni

    http://the-saga.net/images/uploads/Telemark-3-04/pages/ESC_0244.html

    en hún dugði skammt í þessu tilfelli ef ég man rétt.

    kv.
    bassi

    #48584
    0311783479
    Meðlimur

    Umdeilt atvik:
    http://the-saga.net/images/uploads/Telemark-3-04/pages/ESC_0154.html

    …og hver segir að telemark sé ekki full-contact-sport ;o)

    -kv.
    Halli

    #48585
    Sissi
    Moderator

    Hmm – aðallega full contact við jörðina. Ég er nú bara brettalúði og ekki talinn upp á marga fiska af svona telemark töffurum en er ekki hefð fyrir því að standa í lappirnar á þessum spýtum? Við gerum það amk. á brettunum sko. Það eru nefnilega ca. 95% af myndunum af löppum upp í loft og góðu contacti höfuðs við jörðu…

    Þetta lítur út fyrir að vera hættulegt. Spyr sá sem ekkert veit…

    #48586
    0311783479
    Meðlimur

    …enda eru þetta harðir krakkar með hausinn í lagi

    #48587
    2806763069
    Meðlimur

    Tja, eftir að hafa skoðað þessir myndir er ég nú harla ánægður með eigin árangur, og sérstaklega að hafa dottið svo snemma í brautinn að ég komst ekki í tæri við ljósmyndarann.

    Hefur annars einhver séð fjallaleiðsögumanna einkennisbúninginn minn sem gleymdist í Þelamörk?

    #48588
    0704685149
    Meðlimur

    Sæll Ívar og takk fyrir síðast,
    Getur þú lýst búningnum betur? Þá skal ég spjalla við Helga í sundlauginni og athuga hvort hann finni hann ekki?

    Hafið þið tekið eftir klósett-stílnum mínum þarna í brekkunni;

    http://www.the-saga.net/images/uploads/Telemark-3-04/pages/ESC_0212.html

    kv.
    Bassi

    #48589
    2806763069
    Meðlimur

    Blessaður Bassi
    Ég var búinn að tala við hann í Þelamörk og hann sagði að einhver hefði gripið uniformið með sér þar sem menn kváðust kannast við eigandann. Annars var þessi peysa svört með stóru lógói Íslenskra Fjallaleiðsögumanna aftan á.

    Jú og takk kærlega fyrir mig, stefni á að verða reglulegur gestur á festivölum framtíðarinnar.

    Softarinn

    #48590
    0704685149
    Meðlimur

    Ok, þá hlýtur einhver að gefa sig fram eða þið grípið hann að túra með túrhesta á ykkar vegum í sumar.
    kv.
    Bassi

    #48591
    2802693959
    Meðlimur

    Vil nota tækifærið og þakka umsjónarmönnum kærlega fyrir mig og mína. Þetta var mín fyrsta reynsla af annars umtöluðu telemarkfestivali og olli það litlum vonbrigðum nema síður sé enda fór allt saman, góður félagsskapur og frábært veður…í það minnsta á sunnlenskan mælikvarða. En af því að ég hef tilhneygingu til neikvæðni og er orðlagður tuðari þá langar mig að geta þess að ég sé ekkert eftir þeim hæðarmetrum sem ég gekk á Kaldbak á laugardeginum. Þvert á móti held ég að ganga á fallegt fjall og skíðaleiðin niður væri vel til fundinn til að hrista saman hópinn í upphafi móts. Eftir fjallið eru allir endurnærðir á sál og líkama! og minni líkur á að einhverjum leiðist hangsið við horfa á…eða smíða stökkpalla.
    Kveðja, Prúðmennið með stafinn eina (lánaði hinn…glætan!) Jón Gauti

    #48592
    1410693309
    Meðlimur

    Þakka þér fyrir að gæta stafanna, Jón Marínó; þeir hafa auðvitað talsvert tilfinningalegt gildi. Hef samband við þig síðar.

    #48593
    2407695149
    Meðlimur

    Þakka skipuleggjendum og mótsgestum fyrir frábæra helgi. Kaldbakur stóð fyrir sínu, Siglufjörður kom sterkur inn og opnaði nýja vídd í skíðasvæðaúrvalinu fyrir mig.
    Bestu þakkir,
    Hildur

19 umræða - 1 til 19 (af 19)
  • You must be logged in to reply to this topic.