Til lukku með nýjan vef!!!!

Home Umræður Umræður Almennt Til lukku með nýjan vef!!!!

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47549
    0703784699
    Meðlimur

    Vildi bara prufa nýja vefinn, og óska nýjum vefmönnum til hamingju með flotta síðu. Einnig er vert að þakka Helga Borg f. hans ómetanlegu vinnu við að halda úti vefnum síðan einhvern tímann á síðustu öld. Man eftir fyrsta vefnum sem kom, og spjallinu þar, greinilega barn síns tíma en þó gott skref á þeim tíma. Svo kom síðasti vefur sem var þvílík lyftistöng, og það segir nokkuð til um gæði þeirrar síðu hvað hún var lengi í notkun óbreytt.

    En nú eru nýjir tímar og maður þarf að fara að venjast nýju útlít.

    Klapp á bakið fær Helgi Borg, og þrefalt húrra til handa öllum þeim sem lögðu tíma sinn í nýju heimasíðuna, húrra húrra húrra….nýja stjórnin hefur svo sannarlega lyft grettistaki á klúbbnum á mörgum vígstöðum,

    kveðja að sunnan,

    Himmi

    PS; mátti síðan til með að prufa hvort linkar virka… en tékkið á þessum týndu klifurfélögum

    http://www.thecleanestline.com/2009/06/update-latest-developments-in-the-search-for-climbers-missing-in-china.html#more

    #54217
    Páll Sveinsson
    Participant

    Til hamingju við öll.

    kv.
    Palli

    #54218
    Siggi Tommi
    Participant

    Já, þokkalega til lukku með vefinn, drengir!
    Þetta er ekkert annað en stórglæsilegt.

    Hlakka til að vafra hingað inn á hverjum degi héreftir…

    #54219
    Skabbi
    Participant

    Til hamingju Ísalp með nýja vefinn!

    Það hefur hópur fólks lagst á árarnar til að koma þessum vef í loftið. Að öðrum ólöstuðum hafa þeir Gulli go Óli, nýráðnir vefstjórar klúbbsins lagt gríðarlega vinnu í gripinn.

    Eins og títt er með nýja vefi sem þessa eru ýmsir vankantar á vefnum enn sem komið er, en unnið er að því að snyrta og snurfusa svo að allt komi rétt út og verði þægilegt í notkun.

    Góða skemmtun!

    Allez!

    Skabbi

    #54220
    Steinar Sig.
    Meðlimur

    Já flottur vefur. Hanga þræðir núna efstir ef umræða á sér enn stað á þeim? Það fannst mér eini verulegi gallinn á gamla vefnum.

    #54221
    1108755689
    Meðlimur

    Jebb…í flipanum nýlegir þræðir sérðu þá þræði sem hreyfing er á. Getur valið tímabilið sem þú vilt skoða í fellivalboxinu efst í þeim flipa.

    Mbk
    Bragi

    #54222
    Sissi
    Moderator

    Gjöðveikt!

    Þið magnaðir að nenna þessu (fáránleg vinna sjálfsagt búin að fara í þetta) og vil líka þakka Helga fyrir að handskrifa þetta allt á gamla vefnum og halda úti í fleiri ár. Þið eruð öll mjög flott.

    Annars var mega gott færi á Snæfó um helgina, það er hellings snjór þar (langt niðurfyrir lyftu) og allt lokað ennþá.

    Koma svo!!

    Sissi

    #54223
    Smári
    Participant

    Flottur vefur! væri samt ekki hægt að láta umræðuþræði birtast undir nafni í stað kennitölu, ég á auðveldara með að muna nöfn en kennitölur;)Það eru nefninlega ekki allir sem kvitta undir.

    kv. Smári

    #54224
    Sissi
    Moderator

    Já ég væri alveg til í að láta kennitöluna mína ekki vera að þvælast á netinu og það mættu vera miklu fleiri reply (jafnvel allt) á einni síðu í stað þess að það séu bara ca. 5 á hverri síðu. Nýjasta efst væri líka nice.

    SF

    #54225
    1506774169
    Meðlimur

    Þetta með kennitölurnar er eflaust eitthvað sem er í vinnslu en á gömlu síðunni voru allir skráðir eftir henni. Ég myndi aftur á móti vilja sjá að fonturinn á fréttunum á forsíðunni væri stækkaður úr 10px í 11px, þetta er ekki nokkur leið fyrir einhvern með smá sjóngalla að lesa :)

    #54226
    Skabbi
    Participant

    Þetta með kennitölurnar á að sjálfsögðu ekki að vera svona, við erum að vinna í því að fá þetta rétt.

    Ég hvet fólk eindregið til að koma með fleiri ábendingar um það sem betur má fara.

    Allez!

    Skabbi

    #54227

    Til lukku með þetta allir Ísalparar

    #54228
    gulli
    Participant

    Hæ …

    Gott að heyra að menn eru ánægðir með þetta enn sem komið er. Þetta er búið að taka óendanlega langan tíma og orðið mjög langt síðan maður tók 40 tíma vinnutörn eins og um síðustu helgi.

    Okkur Óla Hrafni langar að þakka Arnari J. fyrir hönnunina á útlitinu og Þórhalli Helgasyni fyrir að hafa CSS-að fyrir okkur. Ófáir tímar sem fóru í það.

    Einnig Helga Borg sem á mikinn heiður skilinn fyrir hönnunina á gamla vefnum og alla þá vinnu sem hann hefur lagt í þetta á síðustu 10 árum eða svo. Helgi var í alla staði fagmannlegur við að afhenda okkur gögn og færa lénaskráninguna

    Kveðja,
    Gulli

    #54234
    Anna Gudbjort
    Meðlimur

    Flottur vefur, til hamingju öll sömul!

    En ein spurning, af hverju er ég ekki lengur til? Ef ég ætla inná ‘um mig’ fítusinn þá fæ ég bara ‘This profile does not exist or is no longer available ‘.

    Einelti!

    #54235
    Skabbi
    Participant

    Það hefur verið e-ð pikkles með heimsvæðið, sumir komast inn á það en aðrir ekki. Verið er að vinna í að laga þetta en í millitíðinni er hægt að gera eftirfarandi:

    Í vafranum þínum þarftu að fara í Tools (eða e-ð álíka, fer eftir vafra) -> delete cache eða temporaty internet files, og delete cookies.

    Virkaði hjá mér í Firefox og Internet Explorer

    Skabbi

    #54236
    1506774169
    Meðlimur

    Svo væri ekki leiðinlegt ef innskráningin væri vistuð í köku, frekar leiðinlegt að þurfa að skrá sig inn i hvert skipti sem maður kemur á vefinn (sem er ekki sjaldan) :)

    #54237
    Smári
    Participant

    Kominn inn á mitt hiemasvæði, virkar að eyða kökum og history.

    Í sambandi við community, er það sambærilegt mínum síðum á gömlu síðunni?
    kemst ekki inn á þetta..

    kv. Smári

    #54238
    gulli
    Participant

    Smári Stefánsson wrote:

    Quote:
    Kominn inn á mitt hiemasvæði, virkar að eyða kökum og history.

    Í sambandi við community, er það sambærilegt mínum síðum á gömlu síðunni?
    kemst ekki inn á þetta..

    kv. Smári

    Hæ, í rauninni ekki. Mínar síðar koma undir greinar, bæði á forsíðu og svo undir prófílum notenda.

    Kv,
    Gulli

18 umræða - 1 til 18 (af 18)
  • You must be logged in to reply to this topic.