Svarfaðadalur/Skíðadalur

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Svarfaðadalur/Skíðadalur

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46912
    Stefán Örn
    Participant

    Fórum nokkur saman norður í Svarfaðadal um helgina til að skíða. Óhætt að fullyrða að enn er hægt að komast í fyrirtaksbrekkur ef menn nenna að labba. Í Svarfaðadal var meiri snjór um helgina heldur en um páskana.

    Skíðuðum niður Rimarnar, utarlega í Svarfaðadal og svo Bæjarfjall fyrir ofan Dalvík. Hluti hópsins hafði einnig verið þarna um páskana og þá rennt sér niður Hest í Skíðadal og Vífilsfjall og Sýlingahnjúk í Svarfaðadal. Allar þessar brekkur eru í góðu skíðaástandi og ég fullyrði að enginn verður svikinn af því að bruna norður um helgina.

    Fjöllin á Látraströnd litu einnig mjög vel út.

    Myndir af þessum ferðum hér:
    http://gallery.askur.org/album348
    http://gallery.askur.org/album332
    http://gallery.askur.org/album331

    kv,
    Steppo

    #49673
    Sissi
    Moderator

    Neyðist nú til að taka fram að hluti hópsins brettaði, en það er einmitt talið merki um mun meiri andlegan þroska. Sjáið bara Steppo…

    Sissi, hefur aldrei skíðað

    #49674
    3008774949
    Meðlimur

    Byrjar Sissi að væla….
    Það er eins og brettamenn fyllist minnimáttarkennd um leið og það er ekki minnst á orðið bretti í lýsingum

    Siggi, hefur aldrei brettað

    #49675
    Sissi
    Moderator

    Ætti þetta ekki að vera: „Siggi, rædaði sófann um síðustu helgi“?

    Hehehe…

    #49676
    3008774949
    Meðlimur

    Nohh menn komnir í vörn!!!!!

    #49677
    0311783479
    Meðlimur

    spurning hvor sé í vörn…

    hehehehehe…

    Siggi kallinn orðinn æstur að komast út að leika eftir að sjá myndirnar hans Stebba frá síðustu helgi.

    Halli, sem hefur skíðað og brettað.

    #49678
    Sissi
    Moderator

    Við þessu má svo bæta:

    „Heimsmeistarinn hefur gott vald á venjulegum skíðum en játar að hafa í vetur reynt að ná tökum á snjóbretti sem er margfalt hættulegri íþrótt en hefðbundin skíðun.“

    Sjá: http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1136135

    Furðuleg fullyrðing?!?

    Annars var dalurinn hennar Helgu afskaplega fallegur aftur um síðustu helgi. En það er varla mikið meira að hafa þar í vor.

    Sissi

7 umræða - 1 til 7 (af 7)
  • You must be logged in to reply to this topic.