skreppitúr á Ými og Ýmu, sunnudag. Allir með!

Home Umræður Umræður Almennt skreppitúr á Ými og Ýmu, sunnudag. Allir með!

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47343
    0808794749
    Meðlimur

    spáin fyrir sunnudag er fín og við stefnum nokkur á Ými og Ýmu.
    ef einhver vill slást með í för er það velkomið.
    látið vita hér ef áhugi er fyrir hendi. nú eða bjallið.

    sveinborg (6957581)
    og freyr líka

    úr riti ísalp nr. 10, maí 1979:

    Ýmir er hæsti tindur jökulsins (1462 m.y.s). Stakur kollur í suðaustanverðum jöklinum, allbrattur að norðan. Áföst á honum að austan er strýtan Ýma (1448 m.y.s). Í bjartviðri er geysivíðsýnt af Ými. Einkum tilkomumikið að sjá hina stórskornu norðurhlið Eyjafjallajökuls með falljöklunum tveimur, Gígjökli og Steinsholtsjökli.

    #54630
    0808794749
    Meðlimur

    ætlum að hittast á select kl. 7 í fyrramálið…

    #54631
    1108755689
    Meðlimur

    Ég mæti með

    #54632
    1108755689
    Meðlimur

    Til fróðleiks fyrir fúsa

    http://labbakutar.ir.is/?p=6&id=261

    #54633
    Freyr Ingi
    Participant

    Freyr,
    Sveinborg,
    Björk,
    Bragi,
    Sara,
    Jacob,
    Bergur &
    Arnar Páll
    eiga stefnumót við Tindfjöll á morgun.
    Brottför kl. 07:00 frá Select, Ártúnsbrekku.
    Nóg pláss fyrir fleiri á fjöllum.

    Gaman!

    #54637
    Björk
    Participant

    Myndir frá því á sunnudaginn.

    http://picasaweb.google.com/bjorkh/YmirOgYma#

    kv. Björk

    #54638
    1108755689
    Meðlimur

    Nokkrar myndir frá mér úr sömu ferð. Allt hrátt og óunnið.

    http://tinyurl.com/yzea8mr

    B

    #54639
    0808794749
    Meðlimur

    já sæll hvað allt og allir eru fallegir á myndunum sem myndavélin þín tekur bragi…

    #54643
    1908803629
    Participant

    Þetta hefur verið frábær ferð. Ég verð greinilega að vera duglegri að fylgjast með á vefnum svo ég missi ekki af öllu fjörinu. (Missi ekki úr dag á isalp.is hér eftir ;-)

    Ágúst Kr.

9 umræða - 1 til 9 (af 9)
  • You must be logged in to reply to this topic.