skóstærðir

Home Umræður Umræður Skíði og bretti skóstærðir

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47129
    0801667969
    Meðlimur

    Var að spá í að panta scarpa T-4. Nota venjulega skó númer 45. Leður scarpa skórnir sem ég nota venjulega eru að mig minnir nr. 45. Á reyndar scarpa T-1 og þeir eru nr. 12. Samt fæ ég innilokunartilfinningu í þeim. Eru scarpa plastskór litlir miðað við númer. Á ég að panta einu númeri stærra? Einhver vel inní í þessum plastnúmerascarpaskóaheimi.

    Kv. Árni Alf.

    #50985
    Gummi St
    Participant

    ég á Scarpa Vega plastská (ekki skíðaskór þó) nr. 46 ef þig langar að prufa að máta… þeir eru frekar þröngir á mig

    kv. Gummi St.

    #50986
    0801667969
    Meðlimur

    Ekki er öll vitleysan eins. Fór að skoða T-1 skóna mína betur. Á innri skónum eða sokknum stendur talan 12.
    Á innanverðri skelinni stendur hægra megin; DX: 12 , vinstra megin stendur DX:11-13, á innanverðri tungunni DX: 11/13. Á hælnum stendur svo
    T-1 11-12. Mér sýnist skóframleiðandinn ekki vera viss hvaða stærð af skóm þetta er eða getur einhver sagt mér hvaða stærð af skóm þetta er?

    Kv. Árni Alf.

    #50987
    0808794749
    Meðlimur

    hæ árni

    ég veit ekki nákvæmlega hvernig scarpa hagar sínum skómálum þessi misserin.
    hins vegar veit ég að það tíðkaðist áður fyrr að hafa skel aðeins í heilum númerum en innri skóinn/sokkinn í hálfum númer. semsagt munurinn á hálfu númerunum og næsta heila var aðeins fólginn í innri skónum en ekki skelinni.
    eins getur verið að tungan sé framleidd í sömu stærð fyrir nokkrar stærðir…

    ég ráðlegg þér því að fara eftir því númeri sem er greinilegast, væntanlega á innri skónum.

    æ. vona ég sé ekki að segja einhverja vitleysu er ekki með skóna mína við höndina.

    kannski væri ráð að spyrja jökul? nýjasta liðsmann scarpa.

    p.s. svo er kannski vert fyrir þig að spá í það hvort þú viljir taka T4 eins þrönga og T1 þar sem þú ert væntanlega ekki að fara nota þá í sams konar skíðamennsku…

    #50988
    0704685149
    Meðlimur

    Árni minn,
    Er verið að fara að græja sig og æfa sig fyrir Telemarkhelgina?
    Mundu bara að koma með bikarinn…
    kv. Bassi

    #50989
    0203775509
    Meðlimur

    Amm, í Scarpa-Omega sem við Sissi keyptum síðasta vor frá Halldóri í Fjallakofanum er 1 númer í skeljum fyrir hver tvö í innri sokkum. Væntanlega veit Halldór sjálfur meira um þessi mál og hvort það gildi einnig fyrir Telemark-skónna

    #50990
    0801667969
    Meðlimur

    Nei, nei ekkert verið að græja sig enda segir hvergi hér að ofan að umræddir skór séu ætlaðir á mig, enda svarin mótherji plastmengunar í þessum bransa. Hins vegar lélegt að Scarpa framleiði ekki leður telemarkskó lengur. Mætti halda að þeir væru á svipuðu umhverfisstigi og ríkisstjórnin. Dóri var að fara í Alpana og mátti ekkert vera að þessari vitleysu.

    Kv. Árni Alf.

    #50991
    2806735959
    Meðlimur

    Ég á tvö pör af Scarpa leðurskóm nr. 46. Keypti fjallaskíðaskó í fyrra í mondosize 31, en skv. Telemark-Pyrenees eru Scarpa að færa sig yfir í mondonúmer: http://www.telemark-pyrenees.com/shop/article_info.php?articles_id=21
    Samkvæmt þessu á mondosize 31 að vera sambærilegt við skónúmer 47, en mín reynsla er sú að Scarpaleðurskór númer 46 eru sambærilegir við mondosize 31.

    #50992
    0703784699
    Meðlimur

    Mondosize er eina vitið í þessum heimi til að finna út skóstærð….en 31 þýðir bara 31cm svo einfalt er það.

    Settu fótinn á þér á blað, strikaðu í kringum hann og mældu milli lengstu punkta og þá ertu með mondopoint. Svo ef þú vilt aukarými að þá bætir þú við en það á ekki að þurfa.

    þegar ég verslaði skó hjá Tele-P að þá gerði ég það svona eftir að þeir mældu með því….

    Annars að þá var ég að skoða það nýjast hjá Scarpa í Vegas síðustu helgi, nýjir Telemark skór með minni tá og fleira sniðugt

    kv.Himmi

9 umræða - 1 til 9 (af 9)
  • You must be logged in to reply to this topic.