Skór

Home Umræður Umræður Almennt Skór

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46239
    2906883379
    Meðlimur

    Þannig er nú mál með vexti að ég er að spá í að fara að fjárfesta mér í stífum skóm fyrir vetrarbrölt. En ég virðist ekki geta fundið nema svona um það bil 2 tegundir hér á landi, og eru þær báðar frá Scarpa. Veit einhver hvort það sé einhversstaðar hægt að fá einhverja aðrar tegundir af stífum skóm en Scarpa hérna, eins og t.d. Meindl eða La Sportiva?

    #50055

    Ég held að úrvalið sé ekki meira. Rakst reyndar á La Sportiva ísklifurskó í 66° norður um daginn. Held að þeir séu frekar sérhæfðir í ísklifrið og henti ekki vel í almenna fjallamennsku. Þú getur fengið þá í Fjallakofanum til að panta inn fyrir þig hvaða Scarpa skó sem er.

    #50056
    2401754289
    Meðlimur

    Prófaðu að kíkja á http://www.telemark-pyrenees.com (held að ég sé að skrifa þetta rétt), ágætt úrval þar. Hausverkurinn er bara að máta og tollar!

    #50057
    2906883379
    Meðlimur

    Ok, takk :) Vitið þið hverjir af þessum stífu Scarpa skóm eru góðir fyrir breiða fætur? Þetta er allt svo helvíti mjótt..

    #50058
    2401754289
    Meðlimur

    Scarpa er yfir höfuð betri fyrir fólk með mjóan fót!

    #50059
    0702892889
    Meðlimur

    hefurðu prófað stífu leðurskóna frá salomon, heita held ég super mountain eða eitthvað svoleiðis…hef ekkert nema gott að segja um þá sjálfur:P

    andri

    #50060
    2906883379
    Meðlimur

    Nei, ég hef ekki prófað þá. Veistu hvar er hægt að fá þá hér á landi?

    #50061
    0702892889
    Meðlimur

    ég keypti mína í intersport…veit ekki hvar annarstaðar er hægt að fá þá

    andri

    #50062

    Þú færð þá ekki lengur á íslandi

9 umræða - 1 til 9 (af 9)
  • You must be logged in to reply to this topic.