skjálftinn

Home Umræður Umræður Almennt skjálftinn

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45242
    1704704009
    Meðlimur

    Var e-r að klífa berg, ganga á fjall, hjóla, skoða skriðjökul, fjallaskíða eða hvaðeina í þessum dúr þegar skjálftinn kom í gær? Datt í hug að leita eftir reynslusögum og grjóta þeim í Moggann okkar.

    Mér varð hugsað til Valshamars kl 15.45 í gær. Það skyldi þó aldrei vera að e-r hafi verið þar í miðri línu?

    Pósturinn minn er orsi@mbl.is.
    Ö.

    #52820
    Anna Gudbjort
    Meðlimur

    Það var að mér skilst margmenni í Valshamrinum í gær en mínu fólki til mikillar mæðu þá rétt missti það af herlegheitunum.

    Ég sat annars við tölvuna í Hveragerði. Telst það með?

    #52821
    1704704009
    Meðlimur

    Ekki fyrir akkúrat þennan vinkil.
    Bara fyrir mestu að allir séu ómeiddir. Vonandi skemmdist ekki mikið hjá þér. Baráttukveðjur.

    #52822
    0309673729
    Participant

    Var að klifra í Stardal 17.júní 2000 þegar kletturinn bankaði í mig. Skrýtið tilfinning það.

    #52823
    0703784699
    Meðlimur

    ….kom við í Stardal nokkrum dögum eftir skjálftann 2000 og hitti Helga þá og man ég að við vorum að velta f. okkur brotum sem höfðu fallið úr berginu.

    kv.Himmi

    #52824
    kgb
    Participant

    Var með Helga í Stardalnum 2000. Sat þá á stuðlabergsstöpli og tryggði Stefán P. sem var í miðri leið. Þokkalega feginn að stuðlabergið sveiflaðist ekki meira….

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.