- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
22. maí, 2011 at 22:23 #47524
0503664729ParticipantFrábær helgi á Hnappavöllum. Dauðalogn og sólskin. Lágum í sólbaði eftir gott klifur á laugardagskvöld þegar mökkurinn gerði vart við sig.
Fjör færðist síðan í leikana upp úr kl. 10 þegar mökkurinn nálgaðist óðfluga eins og myndin sýnir. Augnarbliki síðar hvarf allt í myrkri í þéttri öskunni sem féll látlaust í logninu. Það var hreinlega hlaupið í skjól í Tóftina og dvalið í henni í nótt. Hún kom sér svo sannanlega vel.
Dapurlegt umhorfs á Völlunum í morgun. Ekki síst að sjá aumingja dýrin. Hressandi keyrsla heim via Egilstaðir og Blönduós…23. maí, 2011 at 22:37 #56702
Björgvin HilmarssonParticipantFyrsta vaktin í Skaftafelli varð endasleppt að þessu sinni. Komum í bæinn í dag eftir að hafa rýmt Guantanamo í gær og svo ekið löngu leiðina heim með næturstoppi á AK. Hér eru nokkrar myndir úr Skaftafelli sem sýna upphaf gossins og svo hvernig þetta þróaðist.
24. maí, 2011 at 10:39 #56703
1108755689Meðlimurtöff myndir
24. maí, 2011 at 12:18 #56705
2109803509MeðlimurJá frekar dapurlegt ástand fyrir austan. Flottar stemningsmyndir. Takk fyrir að deila.
27. maí, 2011 at 15:09 #56719
2806763069MeðlimurRendi á Hnappavelli. Varla hægt að sjá merki um eldgos og öskufall nema hvað það er smá ryk inni í Tóftinni.
Góðar stundir.
Softarinn
30. maí, 2011 at 10:44 #56724
0703784699MeðlimurTakk f. það Ivar…gott að vita, nú þarf maður bara að vona að veðrið verði f. austan um helgina.
Himmi
31. maí, 2011 at 17:23 #56737
gulliParticipantMundu samt eftir tvistunum, spara skrímerana!

-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.