Nýj leið í Eyjafjöllum

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Nýj leið í Eyjafjöllum

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47301
    Páll Sveinsson
    Participant

    Það er tískan núna að klifra nýjar leiðir. Guðjón Snær, Guðmundur Helgi og Viðar kláruðu leið sem ég og Olli klifruðum hálfa um árið.
    Sjá má grein um það hér.
    http://www.isalp.is/greinar/6-laestar-greinar/179-Paradís.html

    Hún fékk nafnið Afi. En Viðar fékk símtal í miðju klifri að hann væri orðin afi.

    Ég var fastur í barna uppeldi og tók gaurinn með í ljósmyndaferð í staðinn og má sjá hluta af afrakstrinum hér.
    http://picasaweb.google.com/pallsveins/Eyjafjoll2010ParadisarheimtOgAfi#

    Ég smellti nokkrum myndum af þeim sem voru í Paradísarheimt en ég sá tvö pör í orginalnum og eitt í skoruni. Þeir meiga alveg merkja sig inn á myndirnar ef þeir vilja. Geta líka fengið eintök hjá mér ef þeir hafa áhuga.

    kv.
    Palli

    #54974
    Freyr Ingi
    Participant

    Vó!
    FLOTT!

    Til hamingju með titilinn Viðar!

    #54977
    2802693959
    Meðlimur

    Glæsileg leið og til hamingju með nýtt hlutverk Viðar. Einhvern vegin tengir maður þessa tign sjálfkrafa við eftirlaunaaldurinn … hugsið ykkur hvað hægt verður að gera þá… ef maður bara fer varlega núna?
    Annars skældumst við Leifur upp Orginalinn í Paradísarheimt í fylgd Steppó og Kalla. Álengdar (í Skorunni) voru svo Halldór og Ásgeir)
    Setti nokkrar myndir frá þessum magnaða degi í logni, ís og sól.http://picasaweb.google.com/jongauti/IsklParadisarheimt?feat=directlink

    #54978
    Siggi Tommi
    Participant

    Jáseisei. Sennilega ekki svona margir klifrað á Eyjafjöllum á einni viku síðan sautjánhundruðorsúrkál (ef einhvern tímann).
    Vonandi að maður geti komist í að bragða af þessum fágæta elexír þennan veturinn.

    #54979
    2506663659
    Participant

    Hér eru nokkrar myndir frá í dag.
    En eins og fram kom hjá Palla þá fórum við Guðmundur Helgi og Viðar nýja leið undir Eyjafjöllunum í dag.
    http://picasaweb.google.com/gudjons/2010_03_01AfaleiIn?feat=directlink

    Guðjón

    #54981
    Páll Sveinsson
    Participant

    Er verið að trá salt í sárið að setja þessa mynd á forsíðuna?

    kv.
    Palli

    #54982
    gulli
    Participant

    Nei, því miður var enginn svona sniðugur … þetta er bara hending.

    #54988

    Hér koma fleiri myndir frá Canada Dry

    http://arnarogberglind.smugmug.com/2010

    njótið vel,

    Arnar

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.