Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Kempur dagsins sem leið
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
22. nóvember, 2009 at 01:42 #47101
0311783479MeðlimurHalló
Við þremenningar(Sissi, SiggiSkarp og undirritaður) fórum í NA-hrygg Skessuhorns á laugardaginn. Ætluðum að vera 5 en 2 heltust úr lestinni á aðfararnótt laugardags vegna „team building“ (sök og maximus).
Veðrið var sem best var á kosið, öngvinn var vindurinn og nánst heiðskírt. Við fórum NA-hrygginn í fullum skoskum aðstæðum, líklegast III gráða skosk 350m af klifri. Mjög plasteraður snjór á hryggnum en frábært klifur með smá frosnum mosa, snjó og klettahreyfingum.
Fullkominn fjallamennsku dagur, hvílík forréttindi að hafa slíka leið innan við 1:30 akstri frá Reykjavík City.
Held að við getum ekki verið annað en ánægðir með að segja að sísonið hlýtur að vera hafið! Ég flaug frá Englandi bara til að ná þessum degi og vona að margir góðir fylgi í kjölfarið.
Ábyggilega þess virði að skoða Villingadal m.t.t. aðstæðna núna.
Kveðja
Halli und Sissi23. nóvember, 2009 at 09:56 #54769
BjörkParticipantFáum við að sjá myndir?
23. nóvember, 2009 at 12:16 #54772
0311783479MeðlimurHae Bjork,
Jamm myndum verdur vonandi skuttlad a netid i kvold.
kvedja
Halli23. nóvember, 2009 at 22:10 #54779
0311783479Meðlimur23. nóvember, 2009 at 22:31 #54780
0808794749Meðlimurfallegt!
ég væri mest til í að henda öllu frá mér og fara sömu leið á morgun.
leiðir verða ekki klassískari en þetta!25. nóvember, 2009 at 11:52 #54795
GoliMeðlimurFlottur dagur á fjöllum strákar, vel gert !
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.