- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
27. febrúar, 2004 at 12:08 #45479
1705655689MeðlimurHvar er kallinn? Halldór K veist þú ekki eitthvað um það.
27. febrúar, 2004 at 16:46 #48494
SissiModeratorHið þéttriðna fréttanet mitt hermir að Cameron kallinn hafi mætt labbandi aftur niður í Jökulheima, á laugardaginn síðasta að ég held. Þá var hann búinn að reyna eitthvað en sleðinn víst kominn í eitthvað mauk, virtist ekki lokast almennilega og kjálkarnir sem hann notaði til að festa hann við sig bilaðir/brotnir. Menn reyndu eitthvað að lappa upp á þetta með honum og síðan var víst planið að hinkra þarna, gera við og bíða eftir sæmilegri spá.
Færið á svæðinu var þokkalegt, krapi inn á milli en hægt að þræða á milli. Fínt að komast að jöklinum, einhverjar smá sprungur og einhver krapi líka uppi á jökli.
Sizmeister
27. febrúar, 2004 at 19:45 #48495
0405614209ParticipantÉg veit allt um Cameron. Það slitnaði mótorpúði sem harnessið er fest við. Ekkert mál. Ég rúllaði uppeftir og setti nýjan mótorpúða.
Færið er rosalega fínt og ég skutlaðist upp í Grímsvötn á bílnum frá Jökulheimum. Var 4 tíma fram og til baka með því að chilla á leiðinni og pósa fyrir myndatökur. Allt grjóthart og ég er að hugsa um að verða fyrstur til að komast í Grímsvötn á Camaro eða Mustang. Gllimrandi harðfenni.
Sleðinn er í toppstandi og hann á eftir að komast alla leið ef spáin heldur áfram að vera svona góð.Halldór fréttahaukur
27. febrúar, 2004 at 19:46 #48496
0405614209ParticipantÞið getið fylgst með framvindu mála á http://www.soloice.com
Halldór formaður
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.