Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hvalfjörður/Hestgil
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
8. janúar, 2007 at 10:37 #45572
Stefán ÖrnParticipantÉg, Robbi og Árni viðruðum okkur á sunnudaginn í ljósi komandi kuldaskeiðs og hækkandi sól.
Keyrðum Hvalfjörðinn og inn Brynjudalinn. Hvergi aðstæður, eins og við var að búast, en víða byrjað að frjósa.
Takmark dagsins var að líta á Hestgil í Brynjudalnum. Óhætt er að segja að leiðirnar þar eru flottar. Þrjár lænur, allar erfiðar að sjá, voru að myndast auk fossins sem grafið hefur gilið. Við létum því nægja að berja þetta augum og krossa fingur um að að frostið haldist. Enduðum daginn á að þurrtóla eilítið í velbröttum ca 40m háum klettahamrinum, sem er þarna í gilbotninum.
Veit til þess að eitthvað af þessu hefur verið klifrað en man ekki hvað, hvenær, hverjir og í hvaða Ísalp-riti þetta stendur skrifað.
Væri ekki úr vegi ef e-r myndi deila þessum upplýsingum.
Kveðjur,
Steppo8. janúar, 2007 at 12:42 #50878
Páll SveinssonParticipantÞetta var leinistaðurinn hanns Sigursteins Baldurssonar og fór hann allar augljósar línur þar að eigin sögn.
Klifraði tvær línur þarna einu sinni og hafði gaman af. Þetta rennur nú allt saman svo ég man nú ekki nákvæmlega hvaða línur það var.
Nú er heldur stittra að labba að þessu svæði eftir að vegurinn í sumarbústaðarlöndin kom.
kv.
Palli8. janúar, 2007 at 13:25 #50879
Gummi StParticipantvið strákarnir fórum nú bara og klifruðum í múlafjalli á laugardag
kv. Gummi St.
8. janúar, 2007 at 17:47 #50880
JokullMeðlimurIvan grimmi
Pétur miklisjá í skráðum ísleiðum hér á síðunni feb 2003
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.