Hnjúkurinn 2:53:36

Home Umræður Umræður Almennt Hnjúkurinn 2:53:36

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46508
    2806763069
    Meðlimur

    Nýtti mér góðar aðstæður og skellti einu gömlu meti með því að fara á Hnjúkinn á 2:53:36

    Nokkuð viss um að þetta er íslandsmet og finnst ekki leiðinlegt að eiga eitt svoleiðis.

    Heildar ferðin tók 5 tíma og 13 mín bíl í bíl og ég fór Sandfellsleiðina. Einn klifrari/fjallaleiðsögumaður hefur nú þegar gefið það út að hann ætli að bæta tíman og því vonandi að þetta met standi ekki eins lengi og það gamla.

    Aðstæður á Öræfajökli eru með best móti.

    Ívar

    #48964
    0703784699
    Meðlimur

    og var enginn annar með í för?

    var farið „solo“ á hnjúkinn?

    Til hamingju með tímann, gott að vera nákvæmur uppá sec….

    Gimp

    #48965
    2806763069
    Meðlimur

    Einn á ferð.

    Af gefnu tilefni skal tekið fram að ég beið eftir ákjósanlegum og öruggustu mögulegum aðstæðum og ég hef því engan áhuga á að heyra einhvern samanburð við Heimskasta fjallamann landsins sem beið eftir að sjoppan opnaði til að geta keyft samloku og rölti svo upp í strigaskóm og sólbráð.

    Kærastan fylgdist svo með öllu í sjónauka að neðan svo ég gæti ekki svindlað á tímanum.

    Veit einhver hver tíminn hans Guðmundar Helga var svona um það bil (nákvæmar en 3 og hálfur) og hvenær hans met var sett?

    #48966
    0703784699
    Meðlimur

    var tekið lyfjapróf á þér eftir þetta?

    það var enginn að minnast á „heimskasta fjallamann landsins“, en fyndið að þú skildir líta á það þannig!!!!!

    en enn og aftur til hamingju, mig svíður í lungun við að hugsa um þetta……

    Fór Guðmundur Helgi ekki á skíðum upp?

    #48967
    2005774349
    Meðlimur

    Jaá varstu bara að reyna að slá met.

    Ég hélt að þú hefðir einfaldlega misst þolinmæðina, gargað á hópinn sem þú varst að leiðsegja „þið eruð aumingjar“ og stungið síðan af.
    Annað eins hefur nú gerst.

    Glæsilegur tími, til hamingju.

    HRG ÚA

    #48968
    AB
    Participant

    Til lukku, flottur tími. Veit ekki nákvæmlega tímann hans Helga. Fór hann líka Sandfellsleiðina?

    Massíft,
    Kv, AB

    #48969
    Hrappur
    Meðlimur

    Ég sett nýtt Íslands met 1 mínut og 17 sekúntur frá útidyrunum og að afgreiðslu borðinu í Sjoppuni. Setti ekki annað met við að skrifa þetta! Er að vinna í því

    P.s. Keypti sígrettupakka í búðini, kjör aðstæður var orðinn mjög tóbaksþurfi + 10 metra/s meðvindur.

    P.p.s Var 1 mín og 24 sek að lesa þessar greinar hér fyrir ofan.
    Lifum hratt og tökum tímann!

    #48970
    1704704009
    Meðlimur

    Það er þjónar engum tilgangi að bera sig saman við fyrri met sem voru sett þegar jökullinn var 2119 m.

    #48971
    0704685149
    Meðlimur

    Það er nú ekki hægt að bera sig saman við tímann hjá Helga. Það væri eins og að bera saman tíma í 100m sundi og svo 100 m. hlaupi. …Skíðamennska er listgrein og það er ekki keypt í þeim að neinni alvöru eins og menn hafa séð á Telemarkmótinu. Þar eru allir vinir þótt notaðar eru umdeildar aðferðir til að fella andstæðinginn…

    …flott hjá þér.

    kv.
    Bassi

    #48972
    2806763069
    Meðlimur

    Græjum kannski þetta skíðamet með vorinu, en get lítið gert í að hóllinn hefur lækkað!

    Var líka hugsað til þess að GH skemmti sér betur á niðurleiðinni, ekki bara vegna skíðanna heldur líka vegna samfylgdar við ónefndan Everestfara sem hafði víst ætlað að setja metið í upphafi, en gamli refurinn sem ætlaði bara að fylgja honum varð víst á undan. En þetta eru bara kjaftasögur sem maður heyrir í dimmum húsasundum og kannski lítið að marka þó skemmtanagildið sé ótvírætt.

    #48973
    Anonymous
    Inactive

    Sæll Íbbi til hamingju og velkominn í hóp Íslandsmethafa.
    Kveðjur Olli

    #48974
    0405614209
    Participant

    Til hamingju Ívar – gott framtak og gott met.

    Er ekki tilvalið að Ísalp standi fyrir hraðakeppni á toppinn næsta vor? Keppt í 2 flokkum: Skíði og fráir fætur.

    Kveðja
    Halldór formaður

    #48975
    Ólafur
    Participant

    Skíði eða ekki skíði…eina vitið er náttúrulega að mæla tímann frá bíl og niðrí bíl aftur.

    #48976
    1110734499
    Meðlimur

    Glæsilegt met Ívar og til hamingju með það. Þú ættir að spyrja Olla hvort Íslandsmethafar eigi ekki tilkall til styrks úr afreksmannasjóði. A.m.k. ertu vel að því kominn !

    Kv. D

    #48977
    1110734499
    Meðlimur

    Eftir því sem ég man best setti Helgi gamla metið á vordögum 1994 í sólbráð og steikjandi hita. Hann fór Virkisjökulinn og fróðlegt væri ef einhver staðkunnugur gæti upplýst um gengna/hlaupna/skíðaða km á hvorri leið.

    #48978
    Hrappur
    Meðlimur

    Á ekki að mæla tímann frá Reykjavík? og upp á hnjúk ‘eg hef séð Guðmund keyra og ég held að ‘Ibbi verði að fá sér vængi

    #48979
    1704704009
    Meðlimur

    Þetta er akkúrat málið; að Ísalp standi fyrir keppni á Hnúkinn. Stjórnin ræði nánar og riggi þessu upp.

    #48980
    2806763069
    Meðlimur

    Það verður þá að keppa í liðum þannig að menn séu í línu. Annars góð hugmynd og ég mun gera mitt besta til að verja titilinn.

    Fáið svo bara einhverja björgunarsveit til að sjá um öryggið (hífa fólk upp úr sprungum) þá þurfa menn ekki að kunna línuvinnuna til að geta keppt.

    #48981
    0405614209
    Participant

    Þá er það ákveðið: Það verður Hnúksmeistarakeppni vorið 2005. Menn og konur hafa tíma til vors að komast í keppnisform. Stjórnin sest yfir þetta á næsta fundi og reynir að splæsa saman tillögum að keppnisreglum.

    Það er t.d. hægt að merkja/flagga leiðina þannig að þó að það sé þokuspá þá er samt hægt að keppa. Svo mætti setja mannskap við sprungur (ef einhverjar eru) og því minni hætta á ferðum.

    Nánari fréttir/upplýsingar birtar eftir næsta stjórnarfund.

    Minnum jafnframt á dagskrárliði og hvetjum menn til þátttöku. Ísinn er ekki langt undan og það fer hver að verða síðastur að koma sér í form.

    Kveðja
    Halldór formaður

    #48982
    Hrappur
    Meðlimur

    Vissi ekki að ísklifrarar kæmu sér í form! Er kannski verið að tala um að þeir séu búnir að safna á sig vetrarforðanum ;)

    #48983
    Anonymous
    Inactive

    Ísklifrarar þurfa að safna mör til að komast upp ísinn. Verða feitir og sleipir til að renna vel upp á við. Hrappur þú kannast við þessi margfrægu orð frá vini okkar honum Darvin „Survival of the fattest!!!“ það eru orð sem eiga vel við í vetrarkuldum hér á landi ísa og elds. Þegar maður er orðinn feitur er komið almennilegt form á mann en kannski fer minna fyrir líkamlegu formi.
    Kveðja Olli feiti

    #48984
    0405614209
    Participant

    Ha-var-lagið!!!

    Dóri Bumba

22 umræða - 1 til 22 (af 22)
  • You must be logged in to reply to this topic.