Hefur einhver farið til Kyrgyzstan?

Home Umræður Umræður Almennt Hefur einhver farið til Kyrgyzstan?

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45749
    0301793239
    Meðlimur

    Sælir,
    Ég er á leiðinni til Kyrgyzstan í tvo mánuði í sumar(júní til ágúst) til að vinna. Langar mér þá að nýta mér tækifærið og skreppa á einhvern tind, svona um 5000 metrana, og klettaklifra eitthvað.
    Hefur einhver farið þarna út og/eða kannast við aðstæður þ.e. hvort mikið vesein er að ferðast þarna um.
    Ég stefni ekki á hæstu tindana þar sem ég verð við vinnu þarna ytra. Ég verð þ.l. mikið í kringum innfædda enn gott væri ef einhver vissi um aðstæður þarna ytra áður enn maður fer út.

    #47916
    0311783479
    Meðlimur

    ég man nú í fljótu bragði eftir grein í Climbing þar sem einhverjir ameríkanar, sem hugðust klifra einhvern stórann vegg, lentu nú heldur betur í honum kröppum þegar skæruliðar hófu skothríð á þá þar sem þeir hengu í veggnum. Stálu öllu steini léttara í „beis kamp“, þökkuðu klifrararnir sínum sæla fyrir að sleppa lifandi.
    Þannig að farðu varlega.

    #47917
    Jón Haukur
    Participant

    Bó og Einar Stef betur þekktir sem everestfarar voru á þessum slóðum upp úr 1990 og klifruðu nokkra tinda í Pamir. Alla vega á Einar Kyrgisískan þjóðarhatt sem hann gekk með í fjölda ára þannig að hann hlýtur að vera nátengdur þjóðarsál þeirra. Siggi sig og Pétur aðal sem eru báðir starfsmenn hjá slysavarnarfélaginu fóru líka á þessar slóðir ca 96-97 og reyndu við mramornaya stena eða eitthvað álíka íllskiljanlegt nafn Þú gætir tékkað á þeim líka.

    jh

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • You must be logged in to reply to this topic.