Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Gripteip og axarsköft
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
23. október, 2008 at 12:50 #46761
SkabbiParticipantHæ
Langar að deila með ykkur undraefni sem ég fann í Byko í gær þar sem ég var að leita að teipi til að bæta griðið á öxunum mínum.
Stöffið heitir power strech band og ég held að það sé fyrst og fremst ætlað til að gera við rafmagnskapla og garðslöngur. 10 metra rúlla kostaði ca 1200 kall.
Þetta er e-skonar gúmmívafningur sem maður teygir aðeins á og vefur síðan á snúru (eða axarasköftin í mínu tilfelli). Það er ekkert lím á þessu heldur bráðnar þetta eiginlega saman við sjálft sig á svona 10 mínútum. Úr verður þunn slikja af fáránlega slitsterkur og gripgóðu gúmmíi sem á að halda eiginleikum sínum í bleytu og þola allt frá 40 gráðu frosti upp í 190 gráðu hita.
Ég prófaði þetta niðrí klifurhúsi í gær, svínvirkaði.
Allez!
Skabbi
23. október, 2008 at 13:04 #53179
RobbiParticipantNæs…takk fyrir þetta.
Það er hægt að kaupa eitthvað sambærilegt frá Petzl, en ætli maður þurfi ekki að láta annan handlegginn fyrir það í dag.robbi
23. október, 2008 at 17:54 #53180
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantTöff. Ég hef notað hokkýteip sem ég fékk í Everest. Það hefur virkað ágætlega en mætti vera gripmeira.
Ági
24. október, 2008 at 14:24 #53181
2401754289MeðlimurHjólabrettateip virkar líka vel…eins og að halda utan um skaft buið til úr sandpappír!
freon24. október, 2008 at 14:56 #53182
SkabbiParticipantJá, mér datt e-ð svoleiðs í hug en tætir þetta ekki hanskana upp ansi hratt? Tími ekki rándýru pönserunum í svoleiðis tilraunastarfsemi…
Allez!
Skabbz
24. október, 2008 at 23:04 #53183
2401754289MeðlimurDo, or do not do! There is no try!
Yoda -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.