- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
21. mars, 2012 at 08:10 #45134
0801667969MeðlimurHver er munurinn á Grigri og Grigri 2? Er þetta nokkuð sem máli skiptir? Við erum að uppfæra stólabjörgunarbúnaðinn hjá okkur í Bláfjöllum. Er handfangið eini munurinn og munar eitthvað að ráði um það?
Kv. Árni Alf.
21. mars, 2012 at 08:42 #57615
2206834439MeðlimurGrigri 2 er einhverjum % minna enn upprunalega útgáfan og leyfir notendanum að nota grennri línur.
Enn þar sem hvorug útgáfan grípur sérstaklega vel um ísaðar eða frosnar línur, gæti þessi græja klikkað á versta tíma.
kv Árni Þór
21. mars, 2012 at 09:46 #57617
Arni StefanKeymasterGrigri er aðeins hannað fyrir 10-11mm línur. Ég hef þó notað það á talsvert grennri línur (niður í 9.1mm) og það virkar ágætlega EN það þýðir að maður verður að vera vel vakandi og vera viss um að það læsist.
Ég notaði þennan búnað hjá ykkur á samæfingunni um daginn og það angraði mig mikið að það var ekkert handfang á græjunum (gott ef það var ekki grillonið). Í fyrsta lagi þá vissi ég ekki að þetta væri framleitt án handfangs og í öðru lagi fannst mér mjög óþægilegt að stilla mig af án þess. Það var mjög vandræðalegt að koma sér niður í stólana, maður þurfti eiginlega að draga nægan slaka í gegn og niðurklifra í stólinn. Það mætti auðveldlega spara tíma og óþægindi bæði fyrir björgunarmann og þá sem eru í stólnum ef hægt væri einfaldlega að síga niður.
Þar fyrir utan er nýja grigri2 25% minna og 20% léttara auk þess sem bremsan er betur hönnuð og gefur betri stjórn. Það er líka hannað fyrir línur niður í 8.9mm.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.