Grafarfoss

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Grafarfoss

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46124
    2502614709
    Participant

    Við Gísli brugðum okkur í Grafarfoss í morgun, allgjör snilld náttúrulega. Prímaaðstæður hann var opinn á kafla en það kom ekki að sök enda við vel gallaðir. Tókum hann í 2 spönnum (undir stóra steininum) ég saumaði dálítið og skrúfurnar voru búnar þar!
    Hann er í góðum aðstæðum – auðveldari en þegar ég fór hann síðast fyrir tveim árum. Gísli er með myndir sem birtast vonandi bráðum. Er þetta ekki -4 gráða eða hvað? Reyniði nú að fara að klifra druslurnar ykkar svona vetur eru orðnir alltof sjaldgæfir.

    #50764
    Gummi St
    Participant

    Hvar kemur maður að Grafarfossi? og hvernig er færðin þangað? hvernig bíl þarf maður til að komast þangað..

    kv. Gummi St.

    #50765
    2911596219
    Meðlimur

    Gummi minn …

    … maður þarf ekkert nema góðan vilja og markvissa stefnu í norður!

    Grínlaust, þá er þetta afleggjari sem þú tekur til vinstri við fornbílaklúbbin á hæðinni þarna fyrir utan Mosfellsbæ sem er leiðin. Þú heldur svo bara áfram þann vegspotta alveg að húsinu sem er uppundir fossinum, ca. 10 mín keyrsla þangað frá afleggjaranum.

    … og drífa sig svo

    Hvernær ertu að spá í að fara? Mig dauðlangar aftur í þessar aðstæður – eru alveg meiriháttar …

    kv. GHH

    #50766

    Hefur einhver séð inní Hvalfjörð í vikunni? Ætli múlafjall hafi sloppið við þessa léttu hláku? Stefni á klifur á sunnudag.

    ági

    #50767
    2502614709
    Participant

    Þetta er örugglega allt í aðstæðum ennþá… Oríon og félagar…
    Fyrirgefðu að ég skyldi kalla þig druslu.

    #50768
    Gummi St
    Participant

    við förum á morgun eitthvað… múli, flugugil, eða grafarfoss..?? kemur bara í ljós láttu heyra í þér ef þú vilt kíkja

    #50769
    1704704009
    Meðlimur

    Ingvar eyðslukló. Varstu þrotinn að skrúfum þegar í stansinn kom? Hvaða ráðstafanir gerðirðu? Notaðirðu lykkjuna?

    Maður hefur áhyggjur af þessu unga fólki nú til dags.

    #50770
    2502614709
    Participant

    ‘Atti 2 ‘i stansinn – h’ekk bara ‘i annarri sem var ‘i s’olinni. Otrulegt hvad bradnar fra tessu turfti tvisvar ad herda nokkra hringi, russi og exi sem bakkup. endilega deila ferdasogum og myndum, tad eru margir s’ofaklifrar ‘a sveimi… Er frost ‘a Fr’oni?

    #50771
    2401754289
    Meðlimur

    Það var frost á Fróni…rigning núna. Kannski betra að vera með þér, Ingvar, að éta „special Brownies“ í Hollandi!!!
    Annars fór ég ásamt öðrum í Ýring á laugardaginn og bara fínn ís og svo í léttari leið á sunnudeginum utar í Hvalfirðinum…veit ekkert hvað þessi leið heitir. Kannski þeir tveir sem voru neðst í leiðinni þegar við komum niður viti hvað hún heitir???

    Fullt af ís og vonandi kemur frostið aftur fyrir helgi…hvað segir belgingur um það?
    Freon

    #50772
    2911596219
    Meðlimur

    Já … það hlýtur að vera gaman í útlandinu Ingvar.
    Nei það er ekki frost á fróni – allt farið!

    … en það spáir vel yfir helgina, og við verðum bara að treysta því að það komi, það er að segja frostið okkar kæra –

    Hvernær kemur kappinn aftur heim á frón?

    kv. GHH

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.