Esjan um helgina

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Esjan um helgina

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45325
    Skabbi
    Participant

    Við Bernd klifruðum utaní Esjunni í sólskininu í gær. Byrjuðum reyndar daginn á að keyra inn í Hvalfjörð og skoða aðstæður í Glymsgili. Leiðir vafalaust í góðu standi en mikið vatn í ánni og lítill ís.

    Ákváðum að renna yfir í sólkskinið. Keyrðum framhjá Eilífsdal á leiðinni, þar eru allar leiðir í akfeitum aðstæðum, gefur góð fyrirheit fyrir vorið.

    Enduðum á því að klifra Grafarfossin í steikjandi hita og Kókostréð í kjölfarið.

    Eðaldagur, afmeyjaði „Mínar síður“ honum til heiðurs.

    http://isalp.is/art.php?f=175

    Allez!

    Skabbi

    #52519
    Siggi Tommi
    Participant

    Gott stöff. Orðið vel sólbrúnt og sætt þarna en vel buffað.

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.