Búahamrar í dag

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Búahamrar í dag

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45449
    Siggi Tommi
    Participant

    Það var múgur og margmenni í skítviðrinu í Búahömrum í Esju í dag.
    Í morgunsárið mætti undirritaður ásamt Ása ævintýri og smelltum okkur í Ólympiska fjelagið en létum okkur hverfa kl. að verða 2. Síðar mætti Teymið við fjórða mann og topprópuðu kertin ofan við Ólympíska. Svo mættu Andri, Freyr og Gummi Dúllari.
    Veður var með versta móti. Skíta fjúk og misvindasamt þannig að bunurnar úr kertunum fuku um allt og varla þurran blett að finna undir klettunum.
    En leiðin fékk alltént sína aðra rauðpunktun og er það vel. Byssurnar á ungstirninu þoldu ekki sýruna sem Fjelagið bauð upp á svo hann laut í gras en hyggur á hefndir hið fyrsta.
    Tek undir með Andra og co. að leiðin er virkilega skemmtileg. Klassaklifur upp slúttið og kertið uppi skemmtilegt. Eina sem skyggir á er mega hvíldarsyllan eftir slúttið en það var svosem kærkomið að fá hana eftir pumpuna. Gráðan var aðeins rædd þarna og voru menn á þessu erfið M6 alla vega og jafnvel M7 þó við höfum afar lítið til að byggja á eins og komið hefur fram.
    Þó nokkur föll voru tekin, eitt sem endaði á hvolfi og annað næstum með grándi í fyrsta bolta – gaman að því. Það verður að lifa á brúninni til að njóta lífsins… :)

    Andri og Freysi muldu úr einhverju framtíðarprójekti sem vonandi klárast í vetur. Tvíburagilið ætti að geta boðið upp á 5-10 leiðir. Kannski ekki allar einhverjar gersemar en ábyggilega vel brúklegar sem æfingaleiðir enda það sem sárlega vantar hér kringum Gómorru.

    Þökkum piltunum fyrir boltavinnuna, öllum sem eru limir í boltasjóðnum fyrir framlögin og skorum á alla sem telja sig mixtröll að reyna sig við hressleikann.

    #53577
    Siggi Tommi
    Participant

    Hresst. Andri póstaði sitt um leið og ég var að skrifa mitt. Vefstjóri má alveg eyða mínum þræði.

    #53578
    2205892189
    Meðlimur

    Það var mikið fjör í dag, stutt frá bænum, tær snilld. Þakka fyrir boltavinnuna

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • You must be logged in to reply to this topic.