- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
1. desember, 2009 at 00:06 #47033
0808794749MeðlimurAf því að ég hef það pínulítið á tilfinningunni að margir fylgist grannt með spjallinu, en sjái annað síður þá langar mig að benda ykkur á nokkra hluti.
Vidjókvöld á fimmtudag.
Ársritaafhendingu líka á fimmtudag.
Uppfærða afsláttasíðu en félagar mega eiga von á félagsskírteinum og ársriti inn um lúguna í næstu viku.
Og jólaklifur/skíðun sem þið megið láta ykkur hlakka til meira en til jólanna.
1. desember, 2009 at 09:26 #54842
1908803629ParticipantAllt saman mjög spennandi… það borgar sig greinilega að vera ísalpari.
Hvernig er það annars, er það meitlað í stein að allir viðburðir séu á fimmtudagskvöldum? Kannski eiga aðrir við sama vandamál að glíma við og ég, þ.e. að vera alltaf bundinn við annað á fimmtudagskvöldum og því kemst ég aldrei… sem er helvíti fúlt.
Annars bíð ég spenntur eftir að sjá ársritið góða.
3. desember, 2009 at 01:06 #54852
0808794749MeðlimurÁrsritið kom glóðvolgt úr prentsmiðjunni í kvöld og við stjórnarliðar búin að handleika það.
Þeir sem ekki sjá sér fært að kíkja við annað kvöld og ná í ritið, félagsskírteinið og óvæntan glaðning mega eiga von á því í pósti í næstu viku.Annars var ég að setja eldheita fundargerð stjórnarfundar á síðuna en það er eitthvað sem við munum gera í framtíðinni svo allir geti fylgst með okkar verkum. Bæði til að geta gagnrýnt og dáðst að þeim, boðið aðstoð eða ráðlegginar, eða bara látið sér fátt um finnast.
Áhugasamir lesi þetta . -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.