2806763069

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 76 til 100 (af 528)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Hálandajarlinn breiðir út fagnaðarerindið #55344
    2806763069
    Meðlimur

    Massa fyndið!

    Hum! það var reyndar þetta telemark dót sem mér fannst massa fyndið. Stendur nokk á sama um þennan hollywood gæja.

    Athygglis vert að takast að klúðra þessu svona!

    in reply to: Tíu ára afmæli Heklugoss í dag #55264
    2806763069
    Meðlimur

    Og við Rúnar klifruðum nýja leið á því festivali, hún fékk nafnið Hekla 2000.

    in reply to: Hringferð climbing.is #55245
    2806763069
    Meðlimur

    Algert augnakonfekt að vanda, Takk fyrir það!

    in reply to: Ísklifur II #55235
    2806763069
    Meðlimur

    Kemst ekki á festival. og við erum langan lista af þátttakendum þar sem þessu var frestað um daginn. sorry!

    in reply to: Vantar Simond Naja #55230
    2806763069
    Meðlimur

    Já sæll

    Þú veist að Byko selur rosa fínt tape sem hægt er að nota til að bæta gripið ef það er sleipt. En það er ekki að spyrja að þessum ísfirðingum – þeir bjarga sér.

    kv.
    Ivar

    in reply to: Að pósta myndum… #55226
    2806763069
    Meðlimur

    Já talandi um það Bjöggi, nú þegar þú hefur ekkert að gera og situr bara heima væri flott að fá nýjan skammt af mydum frá þér á veraldarvefinn.

    in reply to: Ísklifurfestivalið 2010! #55194
    2806763069
    Meðlimur

    Æ,æ!
    Svo er það hrikalega dottið úr tísku að vitna í norskar veðurspár.

    Vann einusinni fyrir sleða gaur sem tékkaði bara á frönskum veðurspám ef þær íslensku voru honum ekki að skapi. Það fór vel að lokum – eftir að riddaraliðið á Höfn og Fockerinn mættu á staðinn.

    Kv. Softarinn

    in reply to: Klifuraxir til sölu #55187
    2806763069
    Meðlimur

    Tja, lengi getur gott batnað. Kannski maður fari að leggja smá af sumarhýrunni til hliðar fyrir nýjum leikföngum.

    in reply to: Ísklifurfestivalið 2010! #55179
    2806763069
    Meðlimur

    Sorry brjálað að gera hjá ÍFLM og því verður þessu ísfestivali frestað fram í september!

    kv. Maðurinn sem ræður!

    in reply to: Aðstæður #55143
    2806763069
    Meðlimur

    Hljómar vel

    in reply to: Aðstæður #55133
    2806763069
    Meðlimur

    Já, lítur út fyrir að Hollendingarnir hafi fengið eitthvað fyrir peninginn sinn! Annars fórum við Palli Sveins upp í Tvíbbagil í morgun. Hiti vel yfir frostmarki og vatn niður með öllum klettunum. Við ákváðum því að reyna frekar að vinna stig fyrir að vera heima á sunnudegi en að klifra.

    Þetta er líklega slakasti vetur sem ég hef upplifað á mínum 18 ára klifurferlli!

    in reply to: Aðstæður #55130
    2806763069
    Meðlimur

    Viðar, Bjöggi og ég fórum í Tvíbba gilið í dag, nóg af ís fyrir þá sem klippa bolta. En djöfull var þetta nú allt erfitt svona sem næstum fyrsta klifur vetrarins. Best að vera snemma þar sem síðdegissólin losar um allt litla dótið sem hangir víða.

    in reply to: Fréttir frá Kanada #55066
    2806763069
    Meðlimur

    Massalingur ertu maður!

    Hvernig eru svo gráðurnar? Vorum við að giska rétt síðasta vetur eða?

    kv.
    Softarinn

    in reply to: Nýjar leiðir 2009-2010 #55016
    2806763069
    Meðlimur

    Beikon og egg.

    Svínafell Öræfasveit. Línan til vinstri rétt vinstramegin við UMFÖ skóræktarreitinn.

    Heildar klifur – 220 til 230m 5.gr.

    F.f. 6.janúar 2010, Einar Rúnar Sigurðsson & Ívar F. Finnbogason.

    1. Spönn 4.gr 40m
    2. Spönn 5.gr. 20m
    3. Spönn 3./4. gr. 40m
    4. Spönn 4. gr. 45m
    5. Spönn 4+./5. gr 50m
    6. Spönn 4./4+.gr 10-15m
    6b. Spönn 2.gr 50m
    7. Spönn 5.gr. 10-15m

    Til að ganga að leiðinni er best að leggja bílnum við gönguhlið sem ca 200 metrum austan við pípuhliðið á austari afleggjaranum að Svínafelli. Við gönguhliðið byrjar nokkuð áberandi göngustígur sem liggur í átt að Virkisjökli. Eftir ca 200 metra beygir maður til vinstri inn á þrengri stíg sem liggur upp í lerki og grenilund sem plantaður var af UMFÖ. Frá lundinum er gengið að ská til vinstri upp hlíðina, þar til maður kemur upp nokkuð þröngt gil. (Maður gengur fram hjá einni ísleið á leiðinn þangað). Tvær flottar leiðir byrja upp úr þessu gili, og okkar leið er vinstri leiðin.

    Gengum niður eftir Svínafellinu og komum niður yfir Flosalaug.

    http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/Veturinn0910#5424470164858962962

    Kv. Ívar og Einar.

    in reply to: Svartifoss #55015
    2806763069
    Meðlimur

    Við Dóri og Haukur Elvar áttum víst FF af Hundafossi í gær, skráning kemur seinna. Svarti foss var hisvegar bara um 2 cm af ís utan á fossingum og við vorum of litlir kallar fyrir það. Hinsvegar eru glæsilegar sport línur í stuðlunum sitt hvoru megin. Það var komið myrkur og það var okkar afsökun fyrir að reyna það ekki. Svo voru menn líka lúnir eftir 200+ metra leiðirnar deginum áður.

    in reply to: Ísklifurvettlingar. #54964
    2806763069
    Meðlimur

    Nokkuð sammála Róberti með Tegera. Þeir eru nú samt ekki alltaf besta hönnunin.
    Þessir eru gaðveikir þegar maður vill geta haldið lengi í axirnar:

    http://marmot.com/fall_2009/mens/gloves/multipurpose/spring_glove

    Reyndar er ég með eldri týpu en ég vona að þessi nýja sé alveg jafn góð því að ég ætla að fá mér nýja.

    Ég er svo einnig með þessa:

    http://marmot.com/fall_2009/mens/gloves/multipurpose/alpinist_glove

    Aftur virðast þeir hjá Marmot hafa breytt þeim eitthvað síðan ég fékk mér mína. Þetta eru hinsvegar fyrstu handskarnir á löngum ferli sem ég gæti kvittað fyrir að væru í alvöru vatnsheldir. Ég reyndar skipti út innri vetlingnum fyrir þynnri útgáfu til að gera þá liprari.

    En vettlingar í þessu sporti eru endalaus höfuðverkur!

    Softarinn

    in reply to: klifur í dag #54943
    2806763069
    Meðlimur

    Viðar, G.Helgi, Dóri og undirritaður smelltu sér í Orion. Þegar við stöðvuðum bílana undir flugugilinu sá ég að þetta yrði allt of langt labb. Bíl snúið við og ekið beint inn í Glymsgil þar sem aðkoman er miklu viðráðanlegri. Þar tók hópurinn samtals 4 línur. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi þar þó oft hafi verið meiri ís.

    kv.
    Softarinn

    in reply to: klifur í dag #54930
    2806763069
    Meðlimur

    Við Viðar fengum óvænt útivistarleyfi í dag og nýttum það í Grafarfossinum. Þar voru einnig klifurhjónin Arnar og Berglind.

    Nóg af ís en blaut á kafla og stökkt á öðrum köflum.

    Gleðileg jól,

    Softarinn

    in reply to: Hóbó-heilræði og önnur húsráð fyrir fjallafantinn #54873
    2806763069
    Meðlimur

    Það er ekekrt stórmál að skipta um lím á skinnunum, meira að segja ég hef gert það með góðum árangri. Best er að þrífa gamla límð af með hreinsuðu bensíni eða viðmóta leysiefnum. Þetta verður reyndar ansi fljot sóðalegt svo það er gott að gera þetta heima hjá einhverjum öðrum.

    Það ætti svo að vera hægt að fá nýtt kit framan á skinnin og ef þau eru eins og skinn eru flest er ekki mikið mál að skipta. Annars er bara smá pússikband og kannski handsaumakit fyrir hesta (til að sauma þá, þeir kunna ekki að sauma) sem fæst í Hvítlist. Það ætti reyndar að vera til á öllum betri heimilum.

    kv.
    Softarinn

    in reply to: Ársritin #54865
    2806763069
    Meðlimur

    Helga, ég er ekki viss um á blátt og appelsínugult fari vel saman!

    in reply to: Ársritin #54856
    2806763069
    Meðlimur

    Vantar inn aflætti á námskeið fyrir Ísalp félaga – sem reyndar borga ansi fljótt upp árgjaldið fyrir þá sem nýta sér það.

    Varð annars á vegi stjórar í gær – og þeir sem enn bíða eftir sínu ársriti hafa virkilega eitthvað að hlakka til.

    kv. Ívar

    in reply to: Gömul ársrit #54834
    2806763069
    Meðlimur

    og eins og venjulega kemst ég ekki inn á lokaðar síður, þrátt fyrir að vera skuldlaus

    in reply to: fjallaskíða og telemark græjur til sölu #54816
    2806763069
    Meðlimur

    Væntanlega ekki hægt að gera neitt fjallaskíða – ef Hlíðarfjall er ekki inni í myndinni?

    kv.
    Ívar

    in reply to: Þriðjudags kennsluefni #54807
    2806763069
    Meðlimur

    Geðveikt – afhverju hefur engum dottið í hug að vera með felulitar axir áður? Bara svalt.

    Svona á líka að gera það, ef axirnar sökva alltaf í fyrsta og maður hikar aldrei þá er þetta náttúrulega bara létt.

    Palli, horfði reyndar bara á um 20 sec en það verður að teljast framför:)

    Ívar

    in reply to: Brýnt, vaxað og kantskorið #54689
    2806763069
    Meðlimur

    Fulltrúi minn, Gunnar Atli, ætlar að koma með vatnskældan smergil sem er frábær græja á axir og brodda, allt í boði Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.

    Góða skemmtun!

    Ívar

25 umræða - 76 til 100 (af 528)