Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2505703769ParticipantFór í Grafardalinn í gær, mikið af nýjum snjó í Y eða S gilinu eftir því hvað fólk vill kalla leiðina. Það fór að skafa þegar ég var að leggja af stað og varð úr mikil snjóflóðahætta, snéri við með spýjurnar á hælunum.
Annars er mikill snjór undir og alveg uppá brún – lofar góðu.
Myndin er frá 12. des.Tommi
2505703769ParticipantFrábærar aðstæður í Hlíðarfjalli í dag. Fullt af lausum snjó nánast út um allt. Dalurinn, Reithólarnir og skálin sunnan Mannshryggs í toppaðstæðum.
Þetta verður klassi næstu helgi.Sjáumst þá.
2505703769ParticipantSæl öll og til hamingju með nýja árið, sem byrjar fantavel.
Geir Gunnars og undirritaður áttum saman rómantíska stund í fögru tunglskininu á Móskarðshnúkum í kvöld. Fullt af snjó, klassískt Móskarðshnúkafæri, hart og laust til skiptis, þó ekki brotaskari.
Eins gott að nota snjóinn meðan hann er.Kv Tommi
2505703769ParticipantFínar myndir hjá ykkur.
Gastu séð í hvernig aðstæðum skíðaleiðin af toppi Jökulsins og niður að Dagverðará er?
Þetta er leið sem menn fóru hér á árum áður, það var hægt að skíða niður á veg.
Ég átta mig ekki á því hvort að leiðin sjáist á myndunum ykkar.Kv
Tommi Júl -
HöfundurSvör